Evrópudraumurinn svo gott sem úti

ÍBV steinlá gegn Sarpsborg08 á Hásteinsvelli í kvöld í fyrri leik liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik þrátt fyrir að Norðmennirnir hafi verið meira með boltann. Áttu Eyjamenn nokkur ágætis færi og voru óheppnir að skora ekki.

Bikarmeistararnir 1968 voru sérstakir heiðursgestir á leik ÍBV – Sarpsborg. Fulltrúar meistaranna voru þeir Bragi Steingrímsson, Páll Pálmason og Sigmar Pálmason.

Í síðari hálfleik snerist leikurinn algerlega gestunum í hag og skoraði Rashad Muhammed fyrsta mark Sarpsborg í evrópuleik á 59. mínutu. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var svo nálægt því að jafna fjórum mínútum síðar þegar hann átti skot í samskeytin eftir hægan darraðadans í markteig gestana. Í staðin brunuðu gestirnir upp völlin og Patrick Mortensen við öðru marki Sarpsborg. Eftir þetta fundu Eyjamenn aldrei taktinn að nýju og höfðu gestirnir öll tögl og höld á leiknum það sem eftir lifði. Ole Jorgen Halvorsen og Armin Askar gerðu svo algerlega út um Evrópudraum Eyjamenn með sítt hvoru markinu í uppbótatíma.

Það verður því að teljast ansi ólíklegt að ÍBV fái nokkuð út úr þessari rimmu. En til þess þurfa þeir að skora fimm mörk úti í Noregi nk. fimmtudag, 19. júlí.

„Það er gríðarlegt svekk­elsi að hafa kastað þessu svona frá okk­ur í lok­in og fá á okk­ur þessi síðustu tvö mörk eins og kján­ar,” sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari í samtali við Mbl.is að loknum leik. „Ef við horf­um á leik­inn í heild þá vor­um við fín­ir í fyrri hálfleik og sköpuðum okk­ur mjög góð færi og þetta kenn­ir okk­ur það að við verðum að nýta okk­ur svona færi í svona leik. Það er ekki hægt að fara með hálf­kák í fær­in í svona leik það bara geng­ur ekki.”

 

Nýjustu fréttir

Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.