Helstu verkefni lögreglunnar, dagana 15.-22.mars
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni án þess þó að um alvarleg mál hafi verið að ræða. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og lítið um útköll á öldurhús bæjarins. Eitthvað var þó um að aðstoða þurfti fólk sökum ölvunarástands þess.
Á miðvikudaginn í liðinni viku var lögreglu tilkynnt um að létt bifhjól hafi verið tekið ófrjálsri hendi. Lögreglan fann hjólið skömmu síðar þar sem því var ekið upp á Nýjahraun og voru tvo ungir drengi á hjólinu. Hvorugur drengjanna hafði réttindi til aksturs auk þess sem hjólið var óskráð. Viðurkenndu þeir að hafa tekið hjólið og telst málið að mestu upplýst.
Fjögur fíkniefnamál komu upp í vikunni og var lagt hald á lítisháttar af kannabisefnum og kókaín í tengslum við rannsókn málanna. Málin teljast að mestu upplýst.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.