Stemningin á �?jóðhátíð í Eyjum í fyrra náði hámarki þegar snillingarnir í FM95Blö stigu á svið og gjörsamlega trylltu brekkuna. �?að var því mikið forgangsatriði fyrir �?jóðhátíðarnefnd að bóka þá drengi aftur í ár og það er með mikilli gleði sem við staðfestum að Auddi, Steindi Jr, Egill Einarsson, Ágúst Bent, Sverrir Bergmann, Friðrik Dór og sérlegur leynigestur mæta aftur á stóra sviðið á �?jóðhátíð í Eyjum. FM95Blö koma fram á laugardagskvöldinu í ár, bæði á kvöldvökunni og á ballinu seinna um kvöldið þannig að allir �?jóðhátíðargestir geti upplifað einstaka stemninguna og sungið hástöfum með þessum mögnuðu skemmtikröftum.
Í tilefni af þessari tilkynningu þá henti hirðskáld FM95Blö, stórsöngvarinn Sverrir Bergmann, í sérstaka órafmagnaða útgáfu af hinu gríðarlega vinsæla �?jóðhátíðarlagi þeirra félaga –
�?g fer á �?jóðhátíð
Hér er svo myndbandið frá því í fyrra við sama lag:
Dagskráin á �?jóðhátíð í Eyjum hefur aldrei verið glæsilegri og nú þegar er búið að tilkynna Quarashi, Emmsjé Gauta, Agent Fresco, �?lf �?lf, Retro Stefson, Sturla Atlas, GKR, Herra Hnetusmjör, Júníus Meyvant ásamt því að Sverrir Bergmann, Friðrik Dór og hljómsveitin Albatross sem Halldór Gunnar Pálsson stýrir munu flytja �?jóðhátíðarlagið í ár.