FM95BL�? á �?jóðhátíð
Stemningin á �?jóðhátíð í Eyjum í fyrra náði hámarki þegar snillingarnir í FM95Blö stigu á svið og gjörsamlega trylltu brekkuna. �?að var því mikið forgangsatriði fyrir �?jóðhátíðarnefnd að bóka þá drengi aftur í ár og það er með mikilli gleði sem við staðfestum að Auddi, Steindi Jr, Egill Einarsson, Ágúst Bent, Sverrir Bergmann, Friðrik Dór og sérlegur leynigestur mæta aftur á stóra sviðið á �?jóðhátíð í Eyjum. FM95Blö koma fram á laugardagskvöldinu í ár, bæði á kvöldvökunni og á ballinu seinna um kvöldið þannig að allir �?jóðhátíðargestir geti upplifað einstaka stemninguna og sungið hástöfum með þessum mögnuðu skemmtikröftum.
Í tilefni af þessari tilkynningu þá henti hirðskáld FM95Blö, stórsöngvarinn Sverrir Bergmann, í sérstaka órafmagnaða útgáfu af hinu gríðarlega vinsæla �?jóðhátíðarlagi þeirra félaga – �?g fer á �?jóðhátíð
Hér er svo myndbandið frá því í fyrra við sama lag:
Dagskráin á �?jóðhátíð í Eyjum hefur aldrei verið glæsilegri og nú þegar er búið að tilkynna Quarashi, Emmsjé Gauta, Agent Fresco, �?lf �?lf, Retro Stefson, Sturla Atlas, GKR, Herra Hnetusmjör, Júníus Meyvant ásamt því að Sverrir Bergmann, Friðrik Dór og hljómsveitin Albatross sem Halldór Gunnar Pálsson stýrir munu flytja �?jóðhátíðarlagið í ár.
Forsala á �?jóðhátíð er í fullum gangi á dalurinn.is.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.