Heimir minnist Abels - Brosið og hláturinn voru bráðsmitandi
Abel Dhaira, fyrrum leikmaður ÍBV í Pepsi-deildinni, var jarðaður í heimalandi sínu, �?ganda í gær. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari og fyrrum þjálfari ÍBV var viðstaddur athöfnina og er því gerð mikil skil í fjölmiðlum í �?ganda. Í Eyjafréttum í gær er Abels minnst og sagt frá minningarathöfn um hann í Landakirkju. Meðal þeirra sem minnast Abels er Heimir sem skrifaði eftirfarandi:
Í janúar 2010 fór ég í ferð til �?ganda í þeim tilgangi að finna miðjumann fyrir ÍBV. Í ferðinni sá ég þrjá landsleiki �?ganda. Markmið ferðarinnar náðist og Tony Mawejje lék með félaginu það leiktímabil. Í þessum landsleikjum sá ég og hitti Abel Dhaira í fyrsta skipti. Ungur og efnilegur markvörður sem vakti strax athygli mína. Abel hafði reyndar gert samning við annað lið en við vorum í sambandi eftir þessa heimsókn og þegar tækifærið gafst gerði hann samning við ÍBV og kom til Vestmannaeyja 2011. Abel var góður og litríkur markvörður, þjálfaður frá unga aldri af föður sínum sem var sjálfur landsliðsmarkvörður Uganda. Fyrir utan það að vera dökkur á hörund og mjög hávaxinn þá var það leikstíllinn og taktarnir sem gerðu hann frábrugðinn öðrum markvörðum. �?trúleg knatttækni sem var fremri flestum útileikmönnum og það að taka ákvarðanir sem jók hjartsláttartíðni heitustu stuðningsmanna ÍBV verulega. �?rátt fyrir mikil gæði á vellinum var það þó persónuleikinn sem gerði Abel einstakan.
Abel tengdi strax við liðsfélagana, alltaf jákvæður og tilbúinn að leggja mikið á sig til að ná árangri. �?ótt hann og Tony væru saman öllum stundum kallaði Abel samt Yngva Borgþórs alltaf bróður sinn, útlits- lega eru líklega ólíkari bræður vandfundnir. Abel var mjög trúaður, hann talaði við og treysti almættinu öllum stundum. Hann fór með sínar bænir fyrir leiki, í hálfleik og eftir leiki. Allt það góða sem henti Abel þakkaði hann Guði og það má segja að ég hafi stundum verið öfundsjúkur út í hann þarna uppi. Burtséð frá því hvaða snilldartaktík við settum upp, þá var það alltaf Guði að þakka að við unnum. Abel var einstakur karakter. Brosið og hláturinn voru bráðsmitandi og oftast það fyrsta sem tók á móti fólki. Bros og líkamstjáning sem sagði �??það er virkilega gaman að sjá þig�??.
Einlægt bros sem kostaði ekkert en hafði varanleg áhrif á þann sem þáði það. Abel var kurteis, auðmjúkur, kvartaði aldrei og sýndi öllu fólki virðingu. Hann setti aðra í forgang, meira segja í veikindum sínum og kvölum hafði hann áhyggjur af öllum öðrum en sjálfum sér. Við sem höfum það betra og eigum mun meira af veraldlegum hlutum sjáum því miður of oft tæki- færi til að kvarta yfir smámunum. Hugur hans var þó alltaf heima hjá fjölskyldunni í �?ganda, hjá foreldrum, bræðrum og systrum. Abel reyndi á allan hátt að styðja þau að ná sínum markmiðum. �?etta er ástæðan fyrir því hvers vegna Vestmanneyingar og þeir sem kynntust Abel þótti vænt um hann. Ástæða þess að allir tóku höndum saman að styðja hann í erfiðum veikindum. �?egar ættingjar hans og vinir spurðu mig hvernig stæði að því að allir væru svona vingjarnlegir á Íslandi, þá var svarið mitt að þetta hefði ekki verið gert fyrir hvern sem er. Að vissu leyti sorgleg staðreynd en sönn. Menn uppskera eins og þeir sá. Margir voru undrandi á því að ÍBV vildi fá Abel heim til Íslands, veikan manninn, í byrjun árs. Í knattspyrnuheiminum í dag er þetta óvanalegt. Leikmenn þurfa ekkert annað en eiga slakan leik til að vera ýtt til hliðar en ef vel gengur er mönnum hampað.
�?g er óendanlega stoltur af félaginu mínu ÍBV, fyrir það að flytja Abel til Íslands og gera allt til að hjálpa honum í hans erfiðu veikindum, þrátt fyrir að allir vissu að hann væri ekki að fara að leika knattspyrnu fyrir félagið. Strákarnir í knattspyrnuráðinu urðu hans nánsta fjölskylda, ásamt Árnýju Hreiðars, þangað til móðir Abels og systir komu til landsins. Allur þessi stuðningur, bæði fjárhagslegur og ekki síst umhyggjan, sýnir að ÍBV er meira en bara íþróttafélag. ÍBV er stór fjölskylda. �?g kveð þig, góði vinur. Við erum ríkari að hafa fengið að kynnst þér. �?g veit að þú ert í góðum höndum hjá þínum yfirþjálfara í dag. Ef einhver á frátekið sæti í byrjunarliðinu í himnaríki þá ert það þú. Fjölskyldunni votta ég okkar dýpstu samúð og vona að Guð gefi ykkur styrk á erfiðum tíma.
Heimir Hallgrímsson.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.