Mikið er bókað í Herjólf í sumar, meira en síðustu sumur. Vegagerðin og Eimskip ákváðu að bæta 40 aukaferðum við sumaráætlun og segir Gunnlaugur Grettisson rekstrarstjóri að einnig sé bætt við ferðum í kringum þjóðhátíð og tvö íþróttamót sem haldin eru í júní.
�?eir sem stunda ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum og raunar Eyjamenn allir bíða spenntir eftir að Landeyjahöfn verði opnuð og Herjólfur geti hafið siglingar þangað á nýjan leik. Miðað við reynsluna síðustu ár er eins og skrúfað sé frá krana, svo mikið eykst notkun skipsins við það.
Gunnlaugur segir í Morgunblaðinu í dag, að mikið sé að gera þessar vikurnar en ástandið beri þó þess merki að skipið sigli enn til �?orlákshafnar. �?að dragi úr heimsóknum. �?annig séu fermingarveislur barna fámennari en þær hefðu annars verið.
Mbl.is greindi frá.