VSV - Hlutur Stillubræðra inn í Brim
Í DV í dag er sagt frá því að sjávarútvegsfyrirtækið Brim hafi eignast þriðjungshlut í Vinnslustöðinni um miðjan síðasta mánuð. Er það hlutur bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona sem eiga Brim. Hafa þeir með þessu fært hlut sinn í VSV inn í Brim. �?eir áttu um áramótin 30,8 prósent í VSV en keyptu á árinu, að því er kemur fram í frétt DV tæp 2 prósent. Telja þeir sig eiga 34% og þar með rétt með rétt á tveimur mönnum í stjórn. Kaupin fóru í gegnum félagið Eyjavinir ehf. Skildingavegi 2 Vestmannaeyjum.
Í viðtali við DV segir Guðmundur að með þessu séu þeir að styrkja Brim og samlegðaráhrif eigi að vera báðum félögum í hag og muni efla VSV. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson (Binni), framkvæmdastjóri VSV, segir þetta ekki skipta svo miklu máli, í hans huga hafi hlutur bræðranna verið eitt. Særsti hluti bræðranna í VSV var í félaginu Stillu útgerð ehf.
Miklar deilur hafa verið innan eigendahóps VSV síðustu ár og hafa nokkur mál endað fyrir dómstólum. Hlutur Brims er metin á 11,5 milljarða en félagið skuldar um 22 milljarða.
Í samtali við blaðamann Eyjafrétta í vetur kannaðist Guðmundur ekki við að eiga aðkomu að Eyjavinum ehf.
Á myndinni er Kap VE sem VSV keypti á síðasta ári.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.