Verkefni lögreglu í liðinni viku
Vikan fór fram með ágætum og engin alvarleg mál sem upp komu. Helgin fór fram með ágætum og lítið um útköll í tengslum við skemmtanalífið.
Tveir þjófnaðir voru tilkynntir til lögreglu í liðinni viku. Annars vegar var farið inn í bifreið sem stóð á Básaskersbryggju og úr henni m.a. stolið fjölnota verkfæri af gerðinni Milwaukee. Hins vegar var farið inn í bifreiðar sem stóðu við Steypustöðina og rótað í þeim. �?á var lítill veðurstöð stolið sem var á skúr sem er við Steypustöðina. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki, en allar upplýsingar eru vel þegnar um gerendur.
�?rjú umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku, engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum en einhver tjón urðu á ökutækjum.
Að morgni 10. apríl sl. vöknuðu einhverjir bæjarbúar upp við það að skotið var upp flugeldatertu með tilheyrandi hávaða og ónæði. Lögreglan hefur upplýsingar um hver þarna var að verki og mun mál hans fá hefðbundna afgreiðslu. Eins og öllum ætti að vera kunnugt um þá er óheimilt að skjóta upp skoteldum utan hefðbundins tíma í kringum áramót.
Tvær kærur vegna brota á umferðarlögum liggja fyrir eftir vikuna en um er að ræða vanækslu á að hafa öryggisbelti spennt í akstri og ólöglega lagningu ökutækis.
Lögreglan vill minna á að þann 15. apríl nk. er komið að því að setja sumardekkin undir. Hins vegar mun ekki verða byrjað að sekta, þrátt fyrir að ekið sé á negldum hjólbörðum eftir þann tíma, þar sem enn er allra veðra von.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.