�?ann 7.maí næstkomandi mun Blítt og létt hópurinn, bæjarlistarmenn Vestmannaeyja 2015, halda Eyjakvöld í Austurbæ. �?ar verða sungin og leikin, valin Eyjalög og textum verður varpað á skjá svo allir geta sungið með. Miðar fást á
midi.is og kostar 3500 krónur en takmarkað magn miða verður selt í forsölu á 2900 krónur. Blítt og létt hópurinn hefur frá árinu 2009 haldið Eyjakvöld á Kaffi Kró í Eyjum ca.1 sinni í mánuði. Auk þess að hafa komið fram á flestum viðburðum í Eyjum undanfarin ár, hefur hópurinn farið víða um landið og einnig til Færeyja til að kynna menningararf eyjanna.