Um klukkan tíu í morgun vorum um 300 mans búnir að taka þátt í íbúakönnun um aðgengi að löngu. Skrifstofa umhverfis -og framkvæmdasviðs að Skildingavegi hefur verið lokað, en hægt verður að kjósa á rafrænt til miðnættis í kvöld. Til þess að geta kosið rafrænt, þarf að sækja um svokallaðan Íslykil, sem er nokkurs konar auðkennislykill á Internetinu. Til þess að sækja um Íslykil þarf að fara á vefsíðuna http://www.island.is/islykill �?ar má sjá tengil �??Panta Íslykil�?? sem tekur notandann á síðu þar sem hægt er að panta Íslykil. �?ar er slegin inn kennitala notandans og merkt við hvernig viðkomandi vill fá Íslykilinn afhentan. Í netbanka/heimabanka eða í bréfpósti á lögheimili. Athugið að það getur tekið allt að viku að fá lykilinn í bréfpósti og því er nauðsynlegt fyrir þá sem ekki hafa aðgang að heimabanka að sækja um lykilinn sem allra fyrst, hafi þeir á annað borð áhuga á að taka þátt í íbúakosningunni með rafrænum hætti. Eftir að Íslykillinn hefur borist þarf að skrá sig inn á �??Mínar síður�?? hjá island.is. Við það er handhafa Íslykilsins boðið að velja sér nýjan auðkennisstreng sem betur er að muna. Allar nánari upplýsingar um Íslykil �?jóðskrár Íslands má finna á vefsíðunni http://www.island.is/islykill.Einnig er hægt að notast við rafræna auðkenningu í gegnum GSM síma.
�?etta er í annað sinn sem leitað hefur verið beint til bæjarbúa eftir afstöðu til mála af þessu tagi, en í fyrra sinn var um að ræða byggingu hótels við Hástein. Er það von Vestmannaeyjabæjar að sem flestir nýti sér rétt sinn og taki þátt í atkvæðagreiðslunni.