Auðbjörg Helga Friðþjófsdóttir fór á sína fyrstu unglingalandsliðsæfingu um sl. helgi. Allir þeir sem hafa unnið sér rétt að komast inn í unglingalandslið íslands koma saman þrisvar sinnum á ári í æfingabúðir og eru þar allir bestu þjálfara í hverri grein fyrir sig komnir saman til að þjálfa þessa ungu og efninlegu krakka. Ekki er auðvelt að komast inn í þennan hóp en viðmið eru í hverri grein fyrir sig og ef þú hleypur, stekkur eða eins og í hennar tilfelli kastar þig yfir viðmiðin þá ertu kominn inn í þennan hóp. Auðbjörg
er í þessum hópi í kúluvarpi kvenna 15 ára. Framundan eru stífar og öflugar úti og inniæfingar hjá UMF�? í Vestmannaeyjum og marmiðið er að koma fleirum inn í þennan flotta hóp á landsvísu.