Landeyjahöfn - Virðist vanta lítið upp á
Nú er unnið dag og nótt við að dýpka í Landeyjahöfn en enn liggur ekki fyrir hvenær höfnin verður opnuð en það ætti að hafast fyrir helgi. Samkvæmt mælingu í höfninni sem gerð var í gærmorgun lítur þetta nokkuð vel út. Dýpkunarskipið sjálft vinnur allan sólarhringinn en þeir á prammanum eru bara þrír á og vinna í 12 tíma. Bæði bæjarstjórn og Vegagerðin eru ósátt með þetta og hafa komið þeirri óánægju á framfæri.
Hlutverk prammans er að sópa saman efni fyrir dæluskipið. �?lduspá er hagstæð, verður 1 m fram á sunnudag, fer þá rétt yfir 2 m en svo aftur niður á mánudaginn. Suðvestanátt, 5-13 m/s, en hvessir heldur NV-lands seinnipartinn. Skýjað að mestu SV- og V-lands, en annars víða bjart veður. �?ykknar upp með smásúld eða þokulofti V-til í kvöld. Norðlæga átt, 3-10 á morgun, en 10-18 austan �?ræfa. Víða lítilsháttar rigning eða smásúld í fyrramálið, en léttir til þegar kemur fram á daginn. Hiti 3 til 12 stig í dag, en svalara á morgun. Veðurhorfur á landinu næstu daga samkvæmt vedur.is:
Á föstudag:
Breytileg átt 3-8, en norðan 8-13 austast fram eftir degi. �?urrt á landinu og skýjað með köflum. Hiti um og undir frostmarki austantil, annars hiti 2 til 8 stig.
Á laugardag:
Suðvestan 3-8 og skýjað, en bjart með köflum á Austurlandi. Hiti 0 til 7 stig.
Á sunnudag:
Vestlæg átt. Dálítil rigning eða jafnvel slydda um landið vestan- og norðanvert, en þurrt suðaustanlands. Hiti 2 til 8 stig.
Á mánudag:
�?tlit fyrir norðanátt með dálítilli snjókomu og vægu frosti norðantil á landinu, en bjartviðri sunnantil og hiti að 7 stigum yfir daginn.
Á þriðjudag:
Líkur á suðvestanátt með skýjuðu veðri vestanlands, en bjart annars staðar. Heldur hlýnandi.
Spá gerð: 13.04.2016 10:01. Gildir til: 20.04.2016 12:00.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi

© 2019 – Eyjafréttir

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.