Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna eru í lykilstöðu eftir algjörlega frábæran sigur á Fram í kvöld. Fyrsti leikurinn fór fram á heimavelli Framara klukkan 19:30 í kvöld en strax á upphafsmínútunum leiksins var ljóst að það stefndi í hörkuleik.
ÍBV sigraði að lokum með tveggja marka mun 21:23 eftir að hafa leitt stóran hluta síðari hálfleiks. Fram leiddi með einu marki í hálfleik en þeim tókst ekki að stinga ÍBV af.
ÍBV náði frábærum kafla í seinni hálfleik þar sem Fram sá ekki til sólar og komst liðið í fjögurra marka forystu sem þær héldu í nokkurn tíma. �?trúlega illa gekk hjá Fram að skora en þar getur ÍBV þakkað Erlu Rós Sigmarsdóttur sem átti algjörlega frábæran leik í markinu, hún varði hátt í tuttugu skot í kvöld.
Drífa �?orvaldsdóttir og Telma Amado skoruðu flest mörk en Drífa skoraði átta og Telma sjö. Vera Lopes spilaði ekkert í kvöld vegna meiðsla en Greta Kavaliuskaite er enn frá vegna meiðsla. Nokkrir leikmenn ÍBV voru að glíma við smávægileg meiðsli en það var ekki að sjá í leiknum.
Næsti leikur stelpnanna fer fram á laugardaginn í Eyjum og getur ÍBV þar tryggt sig í undanúrslitin. Rétt er að minna á leik ÍBV og Gróttu á morgun sem hefst klukkan 18:30.