Hundagerði á Heimaey
Mikið er af hundum af öllum stærðum og gerðum sem eiga heima á Heimaey en útivistarsvæðið sem þeim er ætlað á eyjunni er ekki upp á marga fiska. �?kumenn koma oft á miklum hraða inn á hundasvæðið á bílum sínum og getur það reynst hættulegt bæði dýrum og mönnum, einnig er óþægilegt að lausir ókunnugir hundar koma askvaðandi áður en hægt er að bregðast við. Frábært væri ef hægt væri að girða af gott hundasvæði þar sem bílar kæmust ekki að og hægt væri að undirbúa sig og sinn hund ef maður sér aðra nálgast, ef hundurinn er
óöruggur í kringum aðra hunda til dæmis væri hægt að koma honum fljótt og örugglega úr aðstæðum. Afgirt hundasvæði væri einn möguleiki en jafnvel væri hægt að setja upp hundagerði en góð reynsla er af þeim á höfuðborgarsvæðinu. �?ar geta hundar og eigendur þeirra leikið sér saman og einnig kynnst öðrum í sömu erindagjörðum. Gerðin í Reykjavík eru þó heldur lítil en gerðið í Mosfellsbæ er um 1500 fermetrar sem er mjög góð stærð. Best væri þó að hafa tvenn svæði/gerði afmörkuð fyrir stóra og litla hunda þar sem ærslagangur í
stórum hundum er oft hættulegur fyrir smágerða voffa. Ein hugmynd væri að hafa gerðið á malarvellinum, tyrfa þyrfti yfir mölina en kosturinn er að hann er miðsvæðis og því ekki langt að fara fyrir flesta bæjarbúa. Hundaeigendur væru síður með hunda á svæðum þar sem þeir eru bannaðir ef rúmgott og afgirt svæði væri til staðar þar sem hundar gætu verið lausir undir eftirliti. �?að er kominn tími á að gera vel við ferfættu vini okkar og tryggja öryggi þeirra og eigenda þeirra.

Nýjustu fréttir

Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum
ÍBV úr leik í Mjólkurbikarnum
Landeyjahöfn opnar á ný – uppfært
Betel við Faxastíg – trúarlíf og mannlíf í heila öld 
Listaverk Ólafs Elíassonar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.