Rauði krossinn í Vestmannaeyjum heldur námskeiðið �??Börn og umhverfi�?? fyrir 12 ára krakka laugardaginn 30. apríl 2016 og sunnudaginn 1. maí. Börn og umhverfi er námskeið fyrir ungmenni fædd á árinu 2004 og eldri. Á námskeiðinu, sem er 12-16 kennslustundir, er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu ásamt ítarlegri kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru m.a. Guðrún María �?orsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Lóa Baldvinsdóttir
leikskólakennari. Allir fá staðfestingarskírteini að námskeiði loknu.
Námskeiðið er haldið í húsnæði Rauða krossins, Arnardrangi við Hilmisgötu. Námskeiðsgjald er kr. 6.500, sem greiðist við fyrstu mætingu. Innifalið er nemendahandbók og hressing (ávextir og safi). Námskeiðið hefst báða dagana kl. 9 og stendur til 16. Nánari upplýsingar á skrifstofu RKÍ, Arnardrangi á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 16-18, sími 481 1956 eða netfangið: ragga54@gmail.com
Tilkynnið þátttöku sem fyrst! Ekki seinna en miðvikudaginn 27. apríl nk. í síma 481 1956 eða á netfang: ragga54@gmail.com.