Strákarnir í meistaraflokki karla í handbolta fá Gróttu í heimsókn í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og eru allir hvattir til að mæta og styðja strákana.
ÍBV endaði í 4. sæti deildarinnar en Grótta í því fimmta. Búist er við hörkuleik þar sem Grótta hefur komið á óvart á tímabilinu.
Flestir leikmenn ÍBV sem voru að glíma við meiðsli eiga að vera klárir í slaginn í kvöld enda er allt lagt undir í úrslitakeppninni. Hvítu Riddararnir hafa einnig lofað góðri endurkomu og verður gaman að sjá þá á pöllunum aftur.