Páll Magnússon gestur næsta þriðjudag
�?ann 19. mars sl. hélt Alzheimer stuðningsfélag í Vestmannaeyjum sitt fyrsta Alzheimerkaffi í Kviku, félagsmiðstöð eldri borgara og var aðsókn góð. �?ar voru mættar Eyjakonan Guðmunda Steingrímsdóttir og Pálína Skjaldardóttir sem eru upphafsmanneskjur Alsheimerskaffi í Reykjavík sem er öllum opið. Sögðu þær frá því hvernig þessi hugmynd þeirra varð að veruleika og sögðu að vel hafi tekist til. Alzheimer kaffið sé vel sótt og þær leitast við að fá gesti, skemmtikrafta eða fyrirlesara sem er vel þegið. �??Mig langar að koma á framfæri hvað það var sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að koma til Eyja til að kynna Alzheimerkaffið,�?? sagði Guðmunda. �??Frábært að sjá hvað þau sem standa að stofnun aðstandendafélagsins í Eyjum hafa undirbúið allt vel. �?g er viss um að auðvelt verður að gera samfélagið í Eyjum vinveitt fólki með heilabilunarsjúkdóma því íbúarnir eru þekktir fyrir jákvæðni og hjálpsemi.�?? Félagið hér ætlar að halda áfram með Alzheimerkaffið og verður Páll Magnússon, Eyjamaður og fyrrum útvarpsstjóri R�?V gestur á næsta fundi sem verður þriðjudaginn 19. apríl kl. 17.00 í Kviku. Fyrir skömmu var sýnd á R�?V athyglisverð mynd sem Páll gerði um sjúkdóminn og tilraunir til að tökum á þessum vágesti sem læðist að fólki. Næsti fundur verðu svo þriðjudaginn 17. maí á sama stað og tíma og þá verður Eyjakonan Hrefna Brynja Gísladóttir, iðjuþjálfi á Akureyri sem hefur mikla reynslu á þessu sviði. �??�?g vil vekja athygli á að allir eru velkomnir, sjúklingar, aðstandendur og þeir sem hafa áhuga á málefninu,�?? sagði Guðný Bjarnadóttir, formaður Alzheimer stuðningsfélags Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.