ÍBV vann frábæran sigur á Gróttu í kvöld og komast því í 1:0 í einvígi liðanna. Leikurinn í kvöld vannst með fimm marka mun 32:27 eftir að ÍBV gjörsamlega keyrði yfir Gróttu í fyrri hálfleik.
Grótta byrjaði betur og komst í 1:4 og 3:5 en ÍBV sneri taflinu fljótt við og leiddu með þriggja marka mun 8:5. ÍBV hélt áfram að gefa í og voru að lokum átta mörkum yfir í hálfleik 16:8. Mest varð forystan níu mörk en Grótta minnkaði muninn í lokin.
Theodór Sigurbjörnsson skoraði mest Eyjamanna eða tíu mörk, Agnar Smári Jónsson gerði sjö.
Næsti leikur liðanna fer fram á sunnudaginn á Seltjarnarnesi.