Framtíð háskólanáms á Suðurlandi
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa boðið til opins fundar um framtíð háskólanáms á Suðurlandi þriðjudaginn 26. apríl á Selfossi. Háskólastigið hefur stækkað mjög ört á liðnum árum en á það hefur verið bent að menntunarstigið á Suðurlandi sé ennþá tiltölulega lágt. Fulltrúar allra sjö háskóla landsins mæta til fundarins auk þingmanna og fulltrúa mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Meðal annars mun Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík verða með innlegg á fundinum en nú í haust býður skólinn upp á þriggja anna diplómunám í haftengdri nýsköpun í Vestmannaeyjum í samvinnu við Háskólann á Akureyri og öflug sjávarútvegsfyrirtæki.

Nýjustu fréttir

Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.