Menn að falla á tíma með að taka nýja ferju í notkun 2018
�??Við vonum að ákvörðun verði tekin á næstu tveimur vikum. Menn eru að falla á tíma með að taka nýja ferju í notkun árið 2018, �?? segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
en Eyjamenn bíða í óþreyju eftir niðurstöðu um hvenær útboð á nýrri Herjólfsferju verði auglýst. Málið hefur verið á borði fjármálaráðuneytisins og innanríkisráðuneytsins en eftir er að ákveða aðkomu ríkisins, þ.e. hvernig ný ferja verður fjármögnuð og með hvaða hætti hægt verður að skuldbinda ríkið, hvort sem boðið verður í smíði eða bæði smíði og rekstur
ferjunnar. �?egar ákvörðun liggur fyrir um þetta verður útboðið auglýst, herma heimilidir blaðsins.

Erfiðara eftir því sem lengra líður
Í samtölum við kunnuga aðila í skipaiðnaði hefur komið fram að það sé að verða mjög tæpt að það takist að hefja siglingar með nýrri ferju á vormánuðum 2018 eins og áætlanir hafa verið um. Fari útboð ekki fram á næstu mánuðum er talið ljóst að ferjan muni tefjast um ár og ekki verða tekin í gagnið fyrr en 2019. Undirbúningur útboðs getur tekið sinn tíma, síðan samningsgerð við verkkaupa og loks smíðin sjálf. Stýrihópur um smíði ferjunnar skilaði af sér skýrslu í byrjun þessa árs þar sem niðurstaðan var sú að útboð þyrfti að fara fram hið fyrsta. �??Með hverjum mánuðinum sem líður verður erfiðara að halda áætlanir um að klára þetta 2018,�?? sagði einn skipaverkfræðingur í samtali við blaðið. Elliði bendir á að allri tæknilegri vinnu vegna útboðsins sé lokið; aðeins sé eftir að ákveða tímasetninguna. Ríkið þurfi að fara að ákveða sig fljótt með fjármögnunina. �??Drátturinn á þessu máli er með öllu ólíðandi. Hönnunarvinnan hefur verið í gangi síðan árið 2008 og nú er komið 2016. Bandaríkjamenn voru fljótari að koma mönnum á tunglið á sínum tíma. �?að skýtur skökku við að
ekki sé hægt að smíða eina ferju. Ríkinu á ekki að koma hlutverk sitt á óvart, þetta er nú ekki í fyrsta sinn sem ferja er smíðuð. Ríkinu á að vera ljóst að það ber ábyrgð á samgöngum
til Eyja eins og annarra staða á landinu,�?? segir Elliði. Hann segir stórar fjárhæðir tapast með drætti málsins; nauðsynlegt sé að hraða aðgerðum því dráttur um eitt ár geti kostað hundruð milljóna króna.
Má ekki tefjast meira
Eins og fram hefur komið í fréttum er Herjólfur farinn að sigla á ný í Landeyjahöfn. Elliði segir það gjörbreyta samfélaginu í Eyjum. Hjól atvinnulífsins snúist hraðar og ekki síst
ferðaþjónustan. �??Með betri samgöngum skapast mikil tækifæri til að búa til ný störf í ferðaþjónustunni. Störfum við veiðar og vinnslu hefur fækkað verulega á undanförnum árum og því er nauðsynlegt að skapa ný störf. Ný ferja má því ekki tefjast meira. �?að er vont að töfin sé vegna seinagangs hjá ríkinu, við þurfum að vinna þetta hratt og vel,�?? segir Elliði enn fremur.
mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.