Að venju lágu mo�?rg mál fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd á mánudaginn. M.a. var sótt um byggingaleyfi, óskir um breytta notkun húsa og sto�?ðuleyfi fyrir veitingatjald.
Meðal mála var erindi nýrra eigenda að Strandveg 30, Vigtarhús með ósk um breytingar á skilmálum lóðar í deiliskipulagi. Sótt er um leyfi fyrir að hækka byggingarreit úr 11 m. í 13,9 m. Hugmynd eigenda er að útbúa íbúðir í Vigtarhúsinu. Ráðið fól skipulagsfulltrúa að auglýsa breytingartillo�?gu deiliskipulags í samræmi við skipulagslo�?g.
Eimskip hyggur á bætta þjónustu við farþega Herjólfs og hefur Rannveig Ísfjo�?rð f.h. Eimskips, Vegagerðarinnar og eigenda Bása 2 óskað eftir afsto�?ðu ráðsins til hugmyndar um tengibyggingu milli Herjólfsafgreiðslu og Bása. Ráðið er hlynnt erindinu. Hugmyndin er að Eimskip leigi norðurenda Bása sem verði hluti af afgreiðslu Herjólfs.
Sigurður Friðrik Gíslason f.h. húseigenda að Bárustíg11 sækir um leyfi til að setja upp veitinga- tjald á austurlóð á tímabilinu júní til loka ágústs. Ráðið samþykkti að veita leyfið.
Gísli Ingi Gunnarsson, óskar f.h. lóðarhafa eftir afsto�?ðu ráðsins til að breyta notkun jarðhæðar úr so�?luturni í tvær íbúðir. Um er að ræða Heiðarveg 10 sem síðast hýsti Toppinn en var í áratugi Bílasto�?ð Vestmannaeyja. Ráðið var ekki hlynnt breytingum þar sem erindið samræmist ekki stefnu aðalskipulags sem gerir fyrst og fremst ráð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi á jarðhæð á umræddu svæði.