EM 2016 | Miðasalan : Hvar og hvenær ?
Margir Eyjamenn hafa verið í Frakklandi síðustu daga eða huga að ferð til Frakklands núna til að sjá Íslands spila á móti Frakklandi í 8. liða úrslitunum. Miðasala á leik Íslands og Frakk­lands sem fram fer á sunnu­dag­inn hefst klukk­an 12 á há­degi í dag, en þar mun gilda fyrst­ur kem­ur, fyrst­ur fær, óháð þjóðerni. �?að má því gera ráð fyr­ir gríðarleg­um áhuga þegar sal­an hefst, enda er Ísland að mæta gest­gjöf­un­um og mjög mik­ill áhugi er meðal heima­manna á leikn­um. �?ótt leik­ur­inn fari fram á þjóðarleik­vangi Frakka, Stade de France, sem tek­ur rúm­lega 81 þúsund manns í sæti, eru all­ar lík­ur á því að upp­selt verði mjög fljótt á leik­inn. �?eir Íslend­ing­ar sem ætla sér að kaupa miða á leik­inn þurfa því að hafa hraðar hend­ur til að næla sér í miða og í fram­haldi af því að kaupa flug­miða og gist­ingu í Par­ís.
Miðasölu­vef­ur UEFA
Form­leg miðasala fer fram á vef UEFA og hefst hún eins og fyrr seg­ir klukk­an 12.00 á há­degi. Aft­ur á móti er hægt að fara í röð í miðasöl­unni klukk­an 11:45 og má telja víst að það sé nauðsyn­legt ef fólk vill eiga mögu­leika á að fá miða. Fyr­ir þann tíma er ekki vit­laust að lík­leg­ir kaup­end­ur út­búi aðgang á síðu miðasöl­unn­ar. �?egar klukk­an er 11:45 er svo smellt á �??Ticket portal�?? boxið neðarlega fyr­ir miðju á síðunni og haldið áfram þaðan í miðakaups­ferl­inu.

Nýjustu fréttir

Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Vel heppnað námskeið í Hvíta húsinu
Loðnuvertíðin líflína fyrir japanskan markað 
Elliði með stórleik gegn Kiel
Laxey – Metnaðarfull uppbygging sem styrkir atvinnulíf og framtíð samfélagsins
Monopoly eða Matador
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.