Tónleikar með Eyþóri Inga
Söngvarinn og Dalvíkingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson mun vera með tónleika á Háaloftinu á laugardaginn kl. 20:00. Tónleikarnir verða með óhefðbundnu sniði þar sem Eyþór mun fara með gamanmál á milli þess sem hann þenur raddböndin.
Nú ertu óumdeilanlega þekktastur fyrir sönghæfileika þína, hvað mun fólk líka fá að sjá á laugardaginn? �??�?g mun vera með allskonar grín og eftirhermur af ýmsum einstaklingum á milli laga. �?etta eru í raun blanda af tónleikum og gríni,�?? segir Eyþór sem hefur farið víðsvegar um landið með þetta prógram. �??�?etta hefur verið gott ferðalag, ég er búinn að fara á flesta tanga landsins og hefur alls staðar verið fullur kofi og góð stemning,�?? bætir Eyþór við.
�??Lögin sem ég tek verða �??cover�?? af mörgum af mínum uppáhalds lögum og fer það mikið eftir því hvernig skapi ég er hvað verður fyrir valinu,�?? segir Eyþór en sem mun vera með píanó, gítar og trommu á sviðinu, svo eitthvað sé nefnt.
Hver var kveikjan að þessari tónleikaröð hjá þér? �??�?etta var algjör tilviljun. �?að gekk bara svo vel að ég fékk hringingar héðan og þaðan og allt í einu var þetta orðið að túr,�?? segir Eyþór.
Hefur þú alltaf verið góður í eftirhermum? �??�?egar ég segi sögur þá fer ég oft í karakter þannig eftirhermur hafa alltaf verið hluti af mér.�?? Dulinn hæfileiki kannski? �??Já, kannski. �?etta hefur verið svona partítrix hjá mér baksviðs á tónleikum og aldrei áður fengið pláss á sviðinu sjálfu,�?? segir Eyþór og bætir við að honum þykir vænt um margar af eftirhermum sínum. �??�?að er alltaf gaman að taka Ladda og einnig Bubba, Páls �?skar og Egil �?lafs svo einhverjir séu nefndir,�?? segir Eyþór.
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða, forsala er í fullum gangi á miði.is. og kostar miðinn 2.500 kr. Einnig verður hægt að nálgast miða við dyrnar.

Nýjustu fréttir

Gabríel Ari gerir tveggja ára samning við ÍBV
Skora á stjórnvöld að eiga jákvætt samtal við ferðaþjónustuna
Fallið frá kröfu um að minnka rampinn
Stór og spennandi tímamót hjá yngstu nemendunum 
Lítil kraftur í veiðunum en skipin lönduðu fullfermi
Landsmót lúðrasveita haldið í Vestmannaeyjum
Hauststarfið að hefjast hjá Pílufélagi Vestmannaeyja
Fyrirvaralaus uppsögn kennara hjá Vestmannaeyjabæ ólögmæt
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.