Sjálfbærni Íslands með garðyrkjuafurðir og olíu
24. febrúar, 2020

Ég fór nýverið fyrir hópi fólks á Íslandi sem hefur sérþekkingu á ýmsu sem snýr að sjálfbærni Íslands í framleiðslu grænmetisafurða. Margt athyglisvert kom fram í starfi okkar og var hópurinn kallaður fyrir ráðherranefnd um matvælastefnu sem forsætisráðherra leiðir.

Samkeppnisforskot í gæðum

Víða í Evrópu eru gróðurhús á mörgum hekturum lands sem brenna gasi, olíu eða jafnvel kjarnorku til að kynda og lýsa gróðurhús. Allir valkostirnir losa mikið kolefni. Á ökrunum við Viktoríu-vatn í Afríku keppa íslenskir blómabændur við sólarljósið og mánaðarlaun verkamanns á akrinum eru um 2.500 kr.- eða sem nemur tímakaupi á Íslandi. Kolefnisspor afurða sem eru ræktuð við þessi skilyrði eru margföld á við íslenska framleiðslu, þar sem hún stendur í hillum verslana um land allt. Stærðarhagkvæmnin og ýmsar náttúrlegar ytri aðstæður gefa erlendri framleiðslu vissulega nokkuð forskot en að öðru leyti er framleiðsla þeirra varla með tærnar þar sem Ísland er með hælana þegar kemur að heilnæmi umhverfisins og kolefnisspori vörunnar.

Þessum áskorunum verður íslensk framleiðsla að mæta með stórsókn í framleiðslu hágæða afurða úr frjóum sverði sem hreint landið býr yfir. Græn ódýr orka, nýsköpun og efling hefðbundinnar garðyrkju getur gert landið sjálfbært á eigin framleiðslu og gefið samkeppnisforskot þegar horft er til gæða. Tækifærið liggur í ódýrri endurnýjanlegri orku og stöðugleika í flutningskostnaði raforku til garðyrkjunnar.

Frjór jarðvegur

Við höfum stuðlað að framleiðslu á vistvænu áli og næstu stóru skref í uppbyggingu á Íslandi er græna stóriðjan sem nýtir ódýra orku til lýsingar í gróðurhúsum sem framleiða einstaka vöru á heimsmælikvarða. Stefnum að sjálfbæru Íslandi í allri framleiðslu garðyrkjuafurða, korni og höfrum, þar sem gæði landsins, sjálfbær orka, frjór jarðvegur og hreint vatn er sérstaðan. Tækifærið er núna og framlag stjórnvalda á að vera að tryggja samninga um ódýra orku til langs tíma og lán á litlum eða engum vöxtum gæti tryggt afkomuna enn frekar.

Garðyrkjulandið Ísland á að mínu mati að taka forystu í ræktun heilnæmra afurða sem fullnægja eftirspurn á innanlandsmarkaði. Til þess að svo megi verða þarf áræðni, framtíðarsýn og stöðugleika í rekstrarumhverfi. Íslensk framleiðsla skilar fimm sinnum minna kolefnisspori en innfluttar afurðir og  hlutur garðyrkjunnar í matvælaframleiðslu landsins í dag er 7,6% en kolefnissporið er 1% af losuninni. Þessi staða er dauðafæri fyrir þátttöku og framlag Íslands í minni losun kolefnis. Opin gróðurhús þar sem fólk kemur og sér matinn verða til og fær að taka þátt í framleiðsluævintýrinu, bókstaflega heyra plönturnar vaxa, er hluti af framtíðarsýninni.

Olía fyrir allan flotann

Fleira getum við gert. Með því að rækta 160.000 hektara af repju, sem er álíka stórt svæði og Sólheimasandur og Mýrdalssandur, er hægt að framleiða 160.000 tonn af repjuolíu. Til samanburðar notar allur fiskiskipaflotinn okkar 130.000 tonn. Hver hektari skilar því einu tonni af olíu, sem er ótrúlega hátt afurðargildi. Hver hektari dregur sex tonn af koltvísýringi úr andrúmsloftinu á vaxtartíma plantnanna og við brennslu olíunnar kemur helmingur til baka. Ávinningurinn er verulegur. Við gætum nær hætt innflutningi á olíu.

Hefjumst handa með aðgerðaáætlun um ræktun olíujurta til framleiðslu eldsneytis sem gæti tekið okkur 5–10 ár. Við vinnslu repjunnar eru fræ hennar skilin frá stráum, sem er helmingur lífmassans. Í raun verður repjuolían aukaafurð í þessari framleiðslu því 320.000 tonn af fóðurmjöli eru mestu verðmætin sem nota má við svína-, nauta- og laxeldi. Þá gefa pressuð repjufræin 160.000 tonn af repjuolíu. Ávinningurinn gæti hlaupið á milljarðasparnaði í innfluttri olíu og stórfelldri minnkun á kolefnisspori landsins.

Þessi vinna og vitneskja er til staðar og við getum hjólað í verkefnið nú þegar. Sérfræðihópurinn sem ég fór fyrir er í startholunum en því miður hefur enginn haft samband eftir fundinn með ráðherranefndinni.

 

Ásmundur Friðriksson,

þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst