Eyjakonur töpuðu gegn Fram
Fram er áfram tap­laust í Olís-deild kvenna í hand­knatt­leik eft­ir sig­ur á ÍBV, 20:17, í Fram­hús­inu í dag (gær) í sjö­undu um­ferð. Fram var með yf­ir­burði í fyrri hálfleik og var fimm mörk­um yfir, 11:6, að hon­um lokn­um og hafði for­skot fram­an af síðari háll­feik. ÍBV-liðið lagði hins­veg­ar ekki árar í bát og gerði kröft­ugt áhlaup þegar á leið síðari há­fl­leik og minnkaði mun­inn í eitt mark í tvígang und­ir lok­in. Nær komust Eyja­kon­ur ekki og Fram-liðið fagnaði sigri á og áfram­hald­andi veru í efsta sæti deild­ar­inn­ar. Mbl.is greindi frá.
Fyrsti stund­ar­fjórðung­ur fyrri hálfleiks var jafn en leiðir skildu upp úr því. Fram-liðið varð manni fleira um skeið og komst þá tveim­ur mörk­um yfir, 7:5. ÍBV-liðinu tókst að ekki að brúa bilið, þvert á móti jók Fram við for­skot sitt og var fimm mörk­um yfir að lokn­um fyrri hálfleik, 11:6. Mun­ur­inn hefði hæg­lega getað verið meiri því Erla Rós Sig­mars­dótt­ir varði m.a. tvö víta­köst Fram­ara auk þess sem nokku opin færi í báðum horn­um fóru for­görgðum hjá Safa­mýr­arliðinu. Sókn­ar­leik­ur ÍBV var slak­ur í fyrri hálfleik. Skot geiguðu auk þess sem liðið tapaði bolt­an­um margoft á ein­fald­ann hátt s.s. eft­ir að dæmt var skref og tvígríp. �?að seg­ir meira en mörg orð að ÍBV skoraði aðeins eitt mark á síðustu 16 mín­út­um fyrri hálfleiks.
Sókn­ar­leik­ur Fram hikstaði tals­vert í byrj­un síðari hálfleiks. Fram­liggj­andi 5/�??1 vörn ÍBV sló Fram­ara út af lag­inu auk þess sem Erla Rós Sig­mars­dótt­ir varði áfram vel í mark­inu. Eyjaliðinu tókst einnig að ljúka sókn­um sín­um bet­ur en áður og loka þar með fyr­ir hraðaupp­hlaup. Upp úr miðjum hálfleik var staðan, 15:11, Fram í vil og ell­efu mín­út­um fyr­ir leiks­lok var mun­ur­inn kom­inn niður í þrjú mörk,16:13, og tals­verð spenna hlaup­inn í leik­inn. For­skot Fram fór niður í eitt mark, 16:15, og 17:16, þegar sex mín­út­ur voru til leiks­loka. ÍBV-liðinu vantaði herslumun­inn upp á að jafna met­in. �?að tókst aldrei. Fram náði þriggja marka for­skoti, 19:16, og hélt sjó til leiks­loka.

Nýjustu fréttir

Kristrún ánægð með heimsókn til Vestmannaeyja
H verslun með pop up verslun í Eyjum
Hafna ósk Terra um styttri opnunartíma
Mugison, saft í brúsa og pönsur á Skansinum
Grjóthrun við Friðarhöfn
Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun
Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar
Rauðáta gæti orðið ný atvinnugrein
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.