Undirrita samning um smíði Herjólfs
Vegagerðin hefur samþykkt tilboð pólskrar skipasmíðastöðvar í smíði nýs Herjólfs og verða samningar undirritaðir eftir helgi. Gert er ráð fyrir að nýja Vestmannaeyjaferjan hefji siglingar sumarið 2018. Vísir.is greinir frá.
Landeyjahöfn og nýr Herjólfur áttu raunar að koma saman í einum pakka enda var höfnin hönnuð fyrir ferju sem risti grynnra en sú gamla. En hrunið frestaði ferjusmíðinni, Landeyjahöfn var opnuð sumarið 2010, og síðan hafa samgöngur við Eyjar liðið fyrir að hafa ekki skip sem hentar höfninni.
�?etta er að verða einhver lengsta meðganga nýrrar ferju á Íslandi. Fimmtán ár eru liðin frá því fyrstu skrefin voru stigin að þessari endurnýjun Herjólfs og nú er loksins komið að því að hefjast handa. Áformað er að á þriðjudag verði skrifað undir verksamning hjá Vegagerðinni við pólsku skipasmíðastöðina Crist í Gdynia.
Smíðasamningurinn hljóðar upp á 26,2 milljónir evra eða um 3,2 milljarða króna. Gert er ráð fyrir að skipið verði afhent í júlí árið 2018. �?að verður álíka stórt og gamli Herjólfur, en grunnristara og með skrúfubúnaði sem á að auðvelda skipstjórum að stýra við erfiðar aðstæður. Áætlanir hönnuða gera ráð fyrir að nýting Landeyjahafnar muni snarbatna og verða á bilinu 76 til 89 prósent eftir aðstæðum.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.