Mbl.is - �?tla að gera útgerðarmönnum tilboð
Samn­inga­nefnd­ir sjó­manna ætla að gera Sam­tök­um fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi til­boð að lausn í sjó­manna­deil­unni. �?etta er niðurstaða fund­ar Samn­inga­nefnd­ar sjó­manna sem fram fór í húsi Alþýðusam­bands Íslands og lauk um klukk­an þrjú í dag. Frá þessu er greint á mbl.is.
�??�?etta var bara fínn fund­ur hjá okk­ur,�?? seg­ir Val­mund­ur Val­munds­son, formaður Sjó­manna­sam­bands Íslands, í sam­tali við mbl.is. �??�?að var ákveðið að gera bara út­gerðarmönn­um til­boð sem samn­inga­nefnd­in var ein­huga um að gera,�?? seg­ir Val­mund­ur.
Að sögn Val­mund­ar er búið að leggja all­ar lín­ur varðandi til­boðið og verður það kynnt SFS í dag. Hann vill ekki tjá sig frek­ar um hvað felst í til­boðinu enda sé hon­um ekki heim­ilt að tjá sig um það í fjöl­miðlum.
�??�?g vil ekk­ert segja um það núna, það er ekk­ert um það að segja,�?? seg­ir Val­mund­ur, spurður hvort að slakað verði með ein­hverj­um hætti á kröf­um sjó­manna með til­boðinu. Hann vill ekki held­ur tjá sig um það hvort út­gerðinni verði gef­inn ein­hver ákveðinn tím­arammi til að vega og meta til­boðið og bregðast við því.
�?á seg­ir Val­mund­ur að ekk­ert hafi verið ákveðið varðandi fram­hald funda­halda vegna verk­falls­ins.

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.