Trillukarlar og draumur trillukarlsins
13. júní, 2021
georg_eidur_ads_op-1.jpg
Greinarhöfundur á sjónum. Ljósmynd/Óskar P. Friðriksson

Ég var ansi dapur yfir atkvæðagreiðslunni núna fyrir helgi, þar sem lögð var fram tillaga um að tryggja nægar aflaheimildir, eða a.m.k. þessa 48 strandveiðidaga á ári áfram, en þeir sem studdu málið voru þingmenn Pírata, Flokki fólksins og einn þingmaður Vinstri grænna. 

Aðrir þingmenn úr meirihlutanum greiddu atkvæði gegn málinu og þingmenn úr öðrum flokkum sátu flest allir hjá. 

Það góða við þetta er þó það, að þarna eru þá alveg skýrar línur um það, hvaða flokkar standa með trillusjómönnum. Staðan að öðru leiti í dag er ótrúlega slæm. Pottar í línuívilnun er öllum lokið, sem dæmi, en hvers vegna láta þessir flokkar svona?

Ástæðurnar eru örugglega mý margar að mati þingmanna í þessum flokkum, en það hvarflar að mér hvort að það hafi ekki töluvert að segja, amk. hjá meirihlutanum, ályktun SFS frá því í vetur en hún var svo hljóðandi, ef ég man alveg rétt:

SFS leggur til að strandveiðar verði aflagðar og aflaheimildunum “skilað” til þeirra sem þær hafa misst.

Undir þetta skrifuðu allar stórútgerðir á landinu. Ansi dapurlegt, en svona er nú bara veruleikinn, það er eiginlega svona hálf súrrelasiskt að hugsa til þess, að flestar þessar stórútgerðir eru svo að leigja frá sér gríðarlegt magn af aflaheimildum og borga þar af leiðandi af þeim engin veiðigjöld, en borga hins vegar vel og dyggilega til sumra stjórnmálaflokka og merkilegt nokkuð, sérstaklega þeirra flokka sem skipa núverandi ríkisstjórnar meirihluta.

En svona til gamans, hvernig horfði ungur maður á þessa trillumennsku fyrir meira en 30 árum síðan?

Svarið felst í hinni gömlu sögu, Draumur trillukarlsins.

Það var eitt sinn ungur maður í Vestmannaeyjum sem hafði gengið með þann draum í maganum að fara í útgerð, enda höfðu bæði afi hans og langafi verið þekktir útgerðarmenn í Eyjum, svo ungi maðurinn keypti sér trillu og byrjaði að róa. Útgerðin gekk svona upp og niður framanaf, en frá fyrsta degi gekk ágætlega að fiska, en sagan hefst sem sé á fögrum vordegi,

Ungi maðurinn fer niður á bryggju, veðurspáin er góð og útlitið eftir því, svo ungi maðurinn setur í gang og leggur frá bryggju og siglir út höfnina, en þegar út fyrir Klettsnefir er komið bregður unga manninum við, því við honum blasir sjón sem hann hafði aldrei séð áður. Eftir að hafa fengið að kynnast briminu og og ofsanum í veðrinu allan veturinn, blasti við spegil sléttur sjórinn og tilfinningin var svo sterk, að sem snöggvast brá fyrir í huga unga mannsins mynd úr gamalli, góðri bók sem hann las spjaldanna á milli á sínum yngri árum, ar sem m.a. segir frá manni sem eftir því sem sagan segir, gekk á vatni. 

Ungi maðurinn hristi þetta af sér og steig út úr stýrishúsinu, kannski til að virða þetta betur fyrir sér, en líka til að hlusta. Ekki heyrðist neitt brimhljóð, en í staðinn fyrir lágvært malið í vélinni kom nánast ærangi gargið í fuglinum.

Ungi maðurinn leit upp eftir Ystakletti, allur fuglinn var sestur upp og allt iðandi af lífi, og fann hvernig þessi sýn snerti hann á sama hátt og eitthvað sem hefur mikil áhrif á okkur. Fór hann síðan aftur inn í stýrishús og lagaði stefnuna, steig síðan út til að virða þetta allt saman betur fyrir sér og var að horfa á eyjarnar í austri, þegar skyndilega fyrsti geisli sólarinnar kom eins og elding austan við jökul. Birtan var svo ofboðsleg að það dugði unga manninum ekki að bera hendinni fyrir og lokaði hann því augunum, en í huga unga mannsins kom algjörlega ósjálfrátt þessi litla ósk einhvern veginn svona: 

Bara ef, bara ef ég gæti fengið að lifa og starfa í friði, ég verð aldrei ríkur en hugsanlega, með hörku og dugnaði, get ég séð fyrir mér og mínum.

Ungi maðurinn hristi þetta nú fljótt af sér og hugsaði með sér:

Ætli það verði ekki einhver bankastjórinn, eða þetta nýjasta kvótakerfi, sem gerir út af við einhverja svona draumóra.

Hann lagaði stefnuna á bátnum betur, en var síðan litið til baka á Heimaey sem fjarlægðist óðum, þá kom þessi viðbót:

Og þó, hér á einhverjum fallegasta stað í heiminum, hér gæti ég svo sannarlega hugsað mér að bera beinin.

Aftur hristi ungi maðurinn af sér þessar hugleiðingar af sér og tautaði með sjálfum sér:

Vonandi á ég nokkur góð ár eftir, og hélt sína leið.

Eins og gefur að skilja, þá þekkti ég þennan unga mann mjög vel og þekki hann kannski ennþá betur í dag, en draumur trillukarlsins lifir enn í daga og þegar við horfum á allar þær hörmungar sem dunuð hafa yfir okkur síðust mánuði og sjáum svo sömu stóru flokkana sem bera ábyrgðina á þessum hörmungum óska enn og aftur eftir því að fá nýtt umboð til að stjórna, þá er aldrei eins mikilvægt og nú að við skoðum þann möguleika að gefa nýjum flokkum og nýju fólki tækifæri á að taka við og fyrir mitt leiti, þá mun ég amk. alltaf kjósa flokka sem styðja við smábátaveiðar og gleymum því heldur ekki að núverandi kvótakerfi hefur aldrei skilað því sem það átti að skila, þeas. uppbygging fiskistofnanna en nánast allir fiskistofnar eru að mælast á niðurleið. Það þarf að breyta, en það þarf að gera það af skynsemi. 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
PXL 20251104 095848596
7. nóvember 2025
20:00
Bókakynning í Eldheimum - Óli Gränz
Skemmtun
ludra
8. nóvember 2025
16:00
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í Hvítasunnukirkjunni
Skemmtun
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.