Elín Árnadóttir útskrifaðist fyrr á árinu með sveinspróf frá fataiðnbraut í Tækniskólanum. Strax eftir námið flutti hún ásamt sambýlismanni sínum, Arnari Ingólfssyni og syni þeirra heim til Vestmannaeyja. Elín kláraði sveinsprófið með afburaárangri og fékk hún tilnefningu þess efnis frá Iðnaðarmannafélaginu. Elín hefur opnað saumastofu á heimili sínu og einnig var hún að byrja að hanna og sauma barnafatnað undir merkinu Moon sem lofar mjög góðu.
Elín er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og er dóttir hjónanna Ernu Ingólfsdóttur og Árna Gunnars Gunnarssonar. Elín sem hefur alltaf verið flink í höndunum sagðist hafa erft þetta frá móður sinni og ömmum sem allar eru og voru afar færar á þessu sviði. �?skan hafi einnig verið mjög lituð af allskonar föndri, saumaskap og hannyrðum. �??Við vorum alltaf eitthvað að búa til í höndunum og það hefur alltaf legið fyrir mér að skapa eitthvað og búa til.�??
Mikil vöntun á meisturum í iðnnámni
Námið hjá Elínu skiptist þannig að hún byrjaði að læra að vera fatatæknir sem tók tvö ár og því næst valdi hún kjólasaum, þá bættust við önnur tvö ár og útskrifaðist hún síðasta sumar úr því námi með afburðaeinkunn. Til að klára námið þarf að fara í 24 vikna starfsþjálfun hjá meistara og var Elín á samningi hjá Kristínu sem hannar og saumar undir merkinu Ryk Íslensk hönnun, sem margar konur þekkja og sagði Elín að hún hafi verið ótrúlega heppin að komast að hjá henni. �??�?að er svo mikil vöntun á meisturum í nánast öllu iðnnámi, þannig að ég var ótrúlega heppin að komast að hjá henni og var búin að fá mörg nei áður en það gerðist.�?? Elín lætur vel af þeirri reynslu sem hún öðlaðist þar þó svo að þetta hafi oft og tíðum verið mikið púsluspil. �??�?g var að vinna þarna eftir skóla og þurfti þar með að vera til klukkan sex og stundum lengur ef ég þurfti að læra, en með góðri hjálp þá reddaðist þetta nú yfirleitt alltaf og ég öðlaðist ómetanlega reynslu í Ryk,�?? sagði Elín.
Hélt að jakkafötin mundu ganga frá mér
Sá sem ekki veit áttar sig lítið á þeirri vinnu sem leynist oft á bak við hverja flík og sagði Elín að næst síðasta önnin hafi verið mjög strembin. �??�?á saumaði ég jakkaföt á Arnar og þrjá aðra kjóla. �?g hélt að jakkfötin mundu ganga frá mér,�?? sagði Elín hlæjandi en þarna spiluðu inní mikil veikindi hjá henni og stráknum, en þau skiptust á að fá pestir alla önnina ásamt því að Elín vann mikið í Ryk, �??en þetta tókst allt á endanum og ég fékk mjög góðar einkunnir sem gáfu kraft inní næstu önn,�?? sagði Elín.
Saumaði brúðarkjól á bestu vinkonuna
Síðasta önnin var sú besta að mati Elínar, hún saumaði þrjá kjóla þá önn og sá síðasti var brúðarkjóll. Hann saumaði Elín á bestu vinkonu sína, hana Ernu Georgsdóttur sem ætlar að gifta sig næsta sumar. �??Kjólinn var ótrúlega flottur og við erum báðar svo ánægðar með hann.�?? En tugir klukkustunda fóru í kjólinn og vandað var við val á efni sem gerir kjólinn mjög dýran.
Elín sýndi kjólinn á sýningu og sagði að hann hafi fengið mikla athygli og mörg hrós. �??Eigandi Eðalklæða sem sérhæfir sig í að sauma og hanna brúðarkjóla kom á sýninguna og hrósaði mér mikið fyrir kjólinn sem var mikill heiður. Hún var svo einnig í sveinsprófs-nefndinni minni sem var frábært og bauð hún mér meira að segja að koma tímabundið í vinnu til sín til að kenna mér meira, en við vorum á leiðinni heim til Eyja, þannig að ég gat ekki tekið því boði. En sannarlega mikill heiður.�??
Allt við Coco Chanel er heillandi
Aðspurð um innblástur sagðist Elín vera mjög heilluð af allskonar munstrum og pælir mikið í þeim ásamt litasamsetningum. �??�?g pæli líka mikið í sniðum og hvað hentar hverju vaxtarlagi og fannast einmitt mjög gaman að hjálpa konum sem komu í Ryk að finna föt sem hentar þeirra vaxtarlagi,�?? sagði Elín.
�??�?g tók líka algjört ástfóstur við Coco Chanel, einnig við sjálfa manneskjuna því hennar saga er mjög heillandi. Tískan og stíllinn sem hún kom með, þessi klassíski, stílhreini og dömulegi stíll er eitthvað sem heillar mig mjög mikið.�??
Elín sagðist jafnframt fengið mikið út úr tímanum sínum í Ryk. �??�?ar er mikið af klassískri hönnun og kvenlegum sniðum sem hentar konum af öllum stærðum og það gerði starfið mjög skemmtilegt og lærdómsríkt, �?? sagði Elín.
Barnafatamerkið Moon
Elín hefur verið dugleg að sauma á son sinn síðan hann kom í heiminn og einnig í gjafir handa vinum og ættingjum. �??�?að var hreinlega vegna þrýstings og fyrirspurna sem hugmyndin kom að barnalínunni,�?? sagði Elín. �?egar fjölskyldan flutti heim í sumar fékk Elín tíma til þess að móta hugmyndina og lét í kjölfarið boltann byrja að rúlla. �??�?g var stödd í sumarbústað þegar ég fór á fullt að skipuleggja og athuga hvað ég þyrfti að gera til að koma þessu af stað. Einnig hafði ég líka heyrt af því að mikil vöntun væri á barnafötum í Vestmannaeyjum, þannig að þetta hélst allt í hendur.�??
Ekki var annað í boði en að finna mjúk og góð efni sem haldast vel og fann Elín fyrirtæki í �?ýskalandi, en fyrirtækið bíður líka kúnnum sínum uppá að hanna sín eigin munstur sem þeir framleiða svo og það er eitthvað sem Elín vonast eftir að gera í náinni framtíð, hanna sitt eigið munstur í barnalínuna. Nafnið Moon kemur frá stráknum hennar Elínar sem heitir Ingólfur Máni.
Fyrr í haust opnaði Elín saumastofu heima hjá sér þar sem allir eru velkomnir en einnig er hægt að skoða Moon línuna þar. �??Draumurinn er svo að koma sér upp lítilli verslun niðri í bæ sem er líka saumastofa og vera með sitt lítið af hverju, barnaföt, kvenmannsföt og fleira sem verður vonandi að veruleika einn daginn,�?? sagði Elín.