Ekki yfir neinu að kvarta þar sem allt gekk upp á endanum
SAMSUNG CSC
SAMSUNG CSC
Björgvin Hallgrímsson og Henný Dröfn Davíðsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn 15. nóvember síðastliðinn. Drengurinn sem fæddist tólf merkur var þriðja barnið sem fæðist í Vestmannaeyjum á árinu og má áætla að hann sé einnig síðasta barnið sem fæðist á árinu hér í bæ.
Fæðingin gekk hratt og vel fyrir sig en svo kom upp sú staða að fylgjan skilaði sér ekki. Varð því að kalla út sjúkraflug og fljúga með fjölskylduna til Reykjavíkur þar sem Henný gekk undir að�??gerð til þess að fjarlægja hana.
Henný var gengin 37 vikur og fimm daga þann 15. nóvember þegar vatn byrjaði að leka klukkan fjögur um nóttina. �?ar sem venjan er að konur fari tveimur vikum fyrir áætlaðan fæðingardag til Reykjavíkur voru þau enn í Vestmannaeyjum og var planið að fara í borgina nokkrum dögum seinna.
Eftir á þá átta ég mig á því að ég var komin í fæðingu
�??�?g var ekkert viss um að þetta væri legvatnið þarna um nóttina og vakti þar með ekki Björgvin og reyndi bara að fara að sofa aftur,�?? sagði Henný. En um morgunin eftir var hún orðin frekar ómöguleg og í hádeginu drífa þau sig uppá spítala til þess að láta athuga málið. �??�?á kemur í ljós að þetta var legvatnið og ljósmóðirnn leggur til að við drífum okkur í Herjólf því það leit út fyrir að báturinn færi í Landeyjahöfn,�?? sagði Henný. Björgvini leist ekkert á það og vildi láta athuga með flug fyrir þau en enginn sæti voru laus.
Henný var á þessum tímapunkti með mikinn þrýsting og verki niður í mjóbakið og sagði að eftir á þá áttaði hún sig á því að auðvitað var hún komin af stað í fæðingu. �??En ég var alltaf að bíða eftir verri verkjum, en fór samt að byrja að taka tímann á milli verkja þegar ég þurfti orðið að stoppa við það sem ég var að gera þegar þeir komu. En við héldum bara áfram að pakka og fórum svo niður á bryggju,�?? sagði Henný.
Kom ekki til mála að fara í Herjólf með hríðir
�?egar niður á bryggju var komið, kom ljós að Herjólfur myndi sigla til �?orlákshafnar. �??�?arna var orðið frekar stutt á milli verkja fannst mér og ég tók það ekki í mál að fara með bátnum í �?orlákshöfn. Við heyrum í ljósmóðurinni sem var samt á því að við skyldum drífa okkur en ég vildi það alls ekki. Á þessum tímapunkti var ekkert sæti laust með flugi, �??en það átti að reyna að koma Henný með og við ákváðum að láta reyna á það. Björgvin og mamma, sem ætlaði að vera viðstödd færu í Herjólfi með allt dótið,�?? sagði Henný.
�?egar nokkrar mínútur voru í brottför með Herjólfi fór Björgvin að efast um þessa ferð og leið ekki nógu vel með að senda hana eina og vera í þokkbót fastur í Herjólfi næstu þrjá tímana. �??Báturinn var hreinlega að bíða eftir að ég tæki ákvörðun um að fara eða vera og eftir að við vorum búin að hafa samband aftur við ljósmóðurina og fengum það staðfest að hún mundi hringja á sjúkraflug fyrir okkur, fór ég frá borði,�?? sagði Björgvin.
�?arna var klukkan að verða fjögur, Björgvin og Henný fara því aftur uppá spítala og ljósmóðirin tekur stöðuna á Henný sem reyndist vera komin með tíu í útvíkkun, þannig að næst á dagskrá var að koma barninu í heiminn. Tæpum einum og hálfum klukkutíma seinna fæðist heilbrigður drengur.
Drengurinn hefði fæðst milli lands og Eyja
�?að var því ótrúleg heppni að Henný stóð fast á sínu og vildi ekki fara í Herjólf því hefði hún ekki gert það hefði drengurinn fæðst mitt á milli lands og Eyja. Einnig munaði ekki miklu að Björgvin hefði misst af fæðingu sonar síns. Móðuramma drengsins, María Pétursdóttir sem ætlaði að vera viðstödd fæðinguna sat samt sem áður með sárt ennið í Herjólfi og missti af fæðingunni.
Tveggja klukkustunda bið eftir sjúkraflugi
Fæðingin gekk vel og mundu margar konur segja ótrúlega vel því Henný var komin með tíu í útvíkkun þarna um klukkan fjögur nánast án þess að kveinka sér. Eftir að börn koma í heiminn þá þarf fylgjan sem hefur haldið utan um barnið þessa níu mánuði að skila sér, ef hún skilar sér ekki þarf að grípa inní. �?egar ljóst var að fylgjan væri ekki að koma eftir allskonar tilraunir sem ekki gengu eftir var hringt á sjúkraflug. �??�?tli við höfum ekki beðið í rúmar tvær klukkustundir eftir fluginu,�?? sagði Björgvin. Fjölskyldan komst að lokum í sjúkraflug og uppá Landspítala þar sem Henný fór í aðgerð til þess að láta fjarlægja fylguna. Allt er gott sem endar vel.
Ekki við neinn að sakast
Nýbökuðu foreldrarnir segja að það sé ekki yfir miklu að kvarta þar sem allt gekk þetta upp á endanum og drengurinn yndislegur. �?? �?að er ekkert við ljósmæðurnar að sakast, þær eru settar í vonlausar aðstæður hérna með ekkert stuðningsnet. En eftir á hefði ég viljað láta athuga með útvíkkunina þarna í hádeginu, þá hefði dagurinn ekki farið í þennan valkvíða og vesen hvernig og hvort við kæmumst alla leið til Reykjavíkur. Ljósmóðirin vildi ekki athuga mig þarna í hádeginu vegna möguleika á sýkingahættu, sem ég skil alveg,�?? sagði Henný. �??En þetta eru vinnureglurnar í Reykjavík þar sem konur eru sendar heim og geta alltaf komið aftur sem eiga bara ekki við hérna í Vestmannaeyjum,�?? bætti Björgvin við.
Dásamlegur tími framundan
Litla fjölskyldan er spennt fyrir jólunum og huggulegheitunum sem framundan eru og einnig mun drengurinn fá nafnið sitt milli jóla og nýárs.
�??�?essi mánuður er búinn að líða hratt og gerum við lítið annað en að halda á honum, njóta hans og horfa á hann,�?? sögðu foreldrarnir.
Enda ekki annað hægt, drengurinn er dásamlegur og öll börn sem fæðast eru sannkallað kraftaverk.

Nýjustu fréttir

Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.