Helga Kristín Kolbeins, skólameistari FÍV: Menntun eykur víðsýni, eykur skilning okkar á því að líf allra er jafn mikilvægt
Eftir ræðu Björgvins Eyjólfssonar tók Helga Kristín Kolbeins, skólameistari, til máls. Fór hún meðal annars yfir mikilvægi menntunar í nútíma samfélagi og hversu miklu máli skiptir að hafa áhuga á viðfangsefninu. Að endingu fengu útskriftarnemendur uppbyggjandi lokaorð frá skólameistara sínum, veganesti sem mun án efa nýtast þeim í hinum miskunnarlausa heimi utan veggja FÍV:
Kæru útskriftarnemar, ég vil byrja þessa hátíð á að óska ykkur innilega til hamingju með daginn og þann árangur sem þið fagnið í dag. �?essi dagur er hátíðardagurinn ykkar. Eins og þið heyrðuð í máli Björgvins þá hefur skólastarfið á þessari önn verið öflugt og við leitum sífellt leiða til að bæta starfið, gera það fjölbreyttara og skilvirkara.
�?að er mikilvægt að hver og einn einstaklingur í þjóðfélaginu sé vel menntaður, mikilvægt fyrir samfélagið og efnahagslífið. Menntun eykur víðsýni, eykur skilning okkar á því að líf allra er jafn mikilvægt. Við viljum að einstaklingurinn geti nýtt sér menntun sína sér til gagns og höfum við útbúið mælitæki til að athuga hvort að svo sé. Við notum niðurstöður mælinganna til að meta hvernig til tekst. Röðum niðurstöðunum eftir löndum og gefum þeim einkunn eftir útkomunni. Við gerum þetta líka hérna. Gleðjumst þegar vel gengur, en verðum sár jafnvel reið þegar við röðumst ekki framarlega.
Einnig erum við minnt á, að í samanburði við aðrar þjóðir, þá er útkoman okkur ekki hagstæð. Oftar en ekki er reynt að finna einhvern, sem hægt er að kenna um hvernig komið er fyrir okkur og endalausar rökræður eru síðan um hvernig eigi að fara að því að bæta niðurstöðurnar. Hvernig eigum við að raðast ofar í einkunnastiganum? Hvernig eigum við að tryggja gæði menntunar?
�?egar rýnt er í niðurstöður rannsókna eins og Pisa sem meira en hálf milljón nemenda í 72 löndum tekur þátt í, þá er margt fleira en einkunnir einstakra námsgreina sem má finna. �?ar fáum við líka svör við spurningum um starfshætti, viðhorf, hegðun og úrræði.
�?egar við rýnum í þau svör, kemur í ljós að viðhorf til náms og trú á eigin getu skiptir megin máli. Eitthvað sem við vitum öll, en hversu miklu máli skipta þessir þættir?
Áhugasamir nemendur ná 12-15% betri árangri
Hugarfarið hefur mikil áhrif, þannig finnur áhugasamur nemandi hjá sér meiri hvöt til að læra heima og vinna að því að ná framúrskarandi árangri. Áhugasamir nemendur ná 12-15% betri árangri en þeir sem hafa ekki áhuga á námsefninu.
Nemandi með vaxandi hugarfar nær 9-17% betri árangri en sá sem hefur fast hugarfar. Fastmótað hugarfar merkir að nemendur telja að vitsmunir þeirra séu föst stærð, þeir eru klárir eða þvert á móti heimskir og ekkert getur breytt því.
Hins vegar eru þeir sem telja sig ekki vera bundna af óbreytanlegum vitsmunum sínum, hvorki miklum eða litlum. Vitsmunir þeirra ráðist af ástundun þeirra í námi, sú afstaða kallast vaxandi hugarfar. Vaxandi hugarfar geta allir þróað og er öllum hollt því það snýst um hvernig við tölum við okkur sjálf. �?að snýst um að: í staðinn fyrir að hugsa ég er ekki góð í þessu, hugsa ég frekar hvað vantar upp á hjá mér. Í staðinn fyrir að gefst upp finnur þú aðra aðferð við að leysa verkefnið. Verkefni sem þú telur að séu of erfið þá getur þú alveg leyst þau en það tekur þig lengri tíma.
Við þurfum að vera meðvituð um hvað hugarfarið skiptir miklu máli og varast það að festast í fastmótuðu hugarfari.
Kennarinn og fagmennska hans skiptir miklu máli í námi einstaklingsins. Nemendur sem njóta virkrar leiðsagnar kennara, koma mun betur út úr mælingum en þeir sem fá minni leiðsögn.
En verkefnið er vandasamt því nemendur verða einnig að fá að vinna að sjálfstæðum verkefnum og tilraunum. Kennsluhættir hafa mikil áhrif á námsárangur. �?að er því mjög mikilvægt að kennarastarfið öðlist þann sess og virðingu sem það á skilið.
Kennarar Framhaldsskólans hafa verið að vinna að starfsþróunarverkefni sem miðar að aukinni fagmennsku kennara og eflingu lærdómssamfélagsins og er einkar ánægjulegt að það virðist sem að verkefnið sé þegar farið að bera ávöxt.
Nemendur ánægðari með kennara sína
Í skólapúlsinum, könnun sem var framkvæmd í nóvember síðastliðnum, kemur í ljós að allir þættir sem lúta að kennurunum og vinnulagi í kennslustundum hafa hækkað frá síðustu mælingu og við sjáum þetta einnig í áfangamat sem framkvæmt er á hverri önn að þar hækkar ánægja nemenda með kennsluna um 10% á milli ára.
�?etta hefur áhrif á útkomuna, brotfall og fall í áföngum er minna. Brottfallið er vel undir 5% en fall í áföngum er rúmlega 5%.
Í skólapúlsinum kom í ljós að 80% nemenda hefur áhuga á náminu og það er sama hlutfall og þegar við tókum þátt í könnunni 2015. �?að kemur ekki á óvart því að þrátt fyrir að við séum með nýja námskrá, þá vantar nýtt og endurbætt námsefni í framhaldsskólanna. Einnig þurfum við að bæta námsumhverfið og hafa þann búnað sem þarf til að styðji við nýja og betri námshætti.
Vantar um 70 milljónir til að endurnýja búnað
Í vikunni var lagt fram nýtt fjárlagafrumvarp og í hlut Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum bættist við tæpt 10 þúsund króna framlag á hvern nemanda á árinu 2018, frá fyrra frumvarpi sem lagt var fram í haust. Á árunum 2019 og 2020 er gert ráð fyrir að fjármagn til skólans dragist ekki saman eins og gert var í fyrra frumvarpi. Peningum sem varið er í menntun er vel varið og við fáum mikla ávöxtun á það fjármagn og tryggjum framtíðina. Við rekum skólann innan fjárlaga, en það breytir ekki þeirri staðreynd að framhaldsskólastigið hefur verið undirfjármagnað í mörg ár og því miður á það sama við um okkar skóla. Menn eru ekki sammála um hversu mikið fjármagn vanti inn í kerfið en tölurnar eru frá tveimur upp í sautján milljarða. Okkur vantar um 70 milljónir til að endurnýja þann búnað sem okkur vantar, þannig að viðbótarframlagið sem við fáum með hverjum nema dugir skammt og enn er langt í land til að við getum lokið þeirri endurnýjun sem er löngu tímabær.
Gervigreind og vélmenni munu leysa öll störf sem byggja á endurtekningu
Í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum erum við að mennta einstaklinga til að takast á við framhaldsnám og störf framtíðarinnar. Störf framtíðarinnar verða mjög ólík því sem við þekkjum í dag. Gervigreind og vélmenni munu leysa öll störf sem byggja á endurtekningu og þau störf sem verða til krefjast þess að einstaklingar hafi víðtæka þekkingu á mörgum sviðum, hæfni til að leysa flókin og skapandi verkefni og séu gagnrýnir í hugsun. �?essi þróun er í daglegu máli kölluð fjórða iðnbyltingin. Skólinn leggur til verkfæri til einstaklingar geti bætt við þekkingu og er vettvangur frjórrar hugsunar sem vekur forvitni, vekur þorsta til að afla frekari upplýsinga og leita nýrra leiða, sem verður til að uppbygging á sér stað.
Í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum höfum við verið að byggja upp umhverfi og aðstöðu fyrir skapandi fólk, lausnamiðað umhverfi og frjóa hugsun. Í skólanum er lögð áhersla á að leggja grunninn að starfsfólki sem getur borið með sér frumkvöðlahugsun og eru því námsgreinar eins og listir og nýsköpun komnar í kjarna stúdentsprófsins.
Í málm- og vélstjórn er skólinn að bæta við fullkomnum tölvustýrðum tækjum og hermum og hefur sett sér það markmið að aðstaðan sem nemendur hafi sé í fremstu röð og ekki síðra en í þeim löndum sem eru í fararbroddi í menntum mál- og vélstjórnargreina. Í lok október barst skólanum styrkur frá Gene Haas Foundation and National Institute for Metalworking Skills til að efla kennslu málmiðnargreina enn frekar og í bréfinu sem fylgdi styrkveitingunni er kennurum skólans þakkað það mikla framlag sem þeir hafa innt af hendi fyrir þróun þessara greina.
Stúdent nr. 1000 útskrifaður
Í dag útskrifuðum við 13 nemendur sem luku námi af 5 námsbrautum. Námið er mislangt og hefur það tekið nemendurna mislangan tíma að ljúka því. Við erum öll stolt af nemendunum sem voru hérna uppi á sviði, glæsilegir fullorðnir einstaklingar með útskriftarhúfu á höfði og skírteini í hönd.
Árið 1984 útskrifuðum við fyrstu stúdentana og í dag útskrifuðum við 1000 stúdentinn, þannig að nú eru stúdentar frá skólanum orðnir 1002. Skólinn hefur útskrifað yfir 500 nemendur með starfsréttindi og tæplega 600 nemendur úr grunnnámi starfsnáms.
�?eir nemendur sem voru að ljúka námi standa núna á tímamótum. Framhaldsskólanámi er lokið, flestir voru að ljúka stúdentsprófi og geta hafið nám í háskóla, hér á Íslandi eða í útlöndum.
Skólaárin í framhaldsskóla eru mótunarár þar sem lagður er grunnur að því sem koma skal. Markmið okkar er að einstaklingar útskrifist með þá hæfni sem fjórða iðnbyltingin gerir kröfur um. Mennta fólk þannig að það geti nýtt sé öll þau tækifæri sem framtíðin ber í skauti sér. Ef við ætlum að vera tilbúin að mæta nýjum tímum og geta nýtt okkur þá tækni sem er í boði, þarf miklu meira en orðin tóm. Við verðum að láta námið vera í forgangi og gera nemendurna hæfa til að takast á við þá spennandi tíma sem bíða okkar.
Til hamingju!
Kæru útskriftarnemar, Fyrir hönd Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum þakka ég ykkur samfylgdina og óska ykkur alls góðs, hvert sem leiðir liggja. �?ið hafið staðið ykkur vel og verið skólanum til sóma. Mér er heiður að því að vera með ykkur í dag, á stórum degi í lífi ykkar. Nú er tilefni til að fagna því þið hafið öll lokið langþráðum áfanga.
�?að eru mikil verðmæti í ykkur fólgin. �?g veit að þeir sem eru hér með okkur geta staðfest það, án þess að hika. Ykkar bíða krefjandi verkefni, framtíð samfélagsins liggur í höndum ykkar.
�?g hvet ykkur til þess að nýta þessi tímamót til þess að hugsa um það hver verður næsti áfanginn á ykkar þroskabraut.
Setjið ykkur markmið og ákveðið næstu skref til þess að ná þeim. Markmiðin geta snert allt milli himins og jarðar, bara að þau skipti ykkur sjálf máli.
Nelson Mandela sagði að menntun væri besta tækið sem við höfum til þess að breyta heiminum. Menntun eykur víðsýni, menntun er til þess fallin að opna hjörtu okkar fyrir fegurð. �?ið, kæru nemendur, eruð búin að sækja tíma í ótal námsgreinum þar sem setið er og spjallað um það sem skiptir máli í lífinu. �?ið hafið rætt mikilvægar spurningar við samnemendur ykkar og kennara og fengið þjálfun í að skoða mál út frá mismunandi sjónarhóli. Fyrir marga er þessi þáttur menntunar sá notadrýgsti. Að fá tækifæri til að skoða hugmyndir og atburði í víðara samhengi,að máta sig og sínar skoðanir við það sem öðrum finnst.
Munið að þið getið ráðið mjög miklu um það hvernig líf ykkar verður. Byrjið á að hugsa hvað langar mig! Og leyfið ykkur að hugsa stórt! Markmiðin sem þið setjið ykkur er vel hægt að ná. Verið trú landi ykkar og uppruna og farið vel með tungumálið okkar. Berið virðingu fyrir fjölskyldu ykkar og vinum og því samferðarfólki sem verður á vegi ykkar í framtíðinni. Fyrst og fremst berið virðingu og umhyggju fyrir ykkur sjálfum og þeim verkefnum sem þið takið að ykkur í framtíðinni.
�?g vona og veit að þið eigið góðar minningar frá tíma ykkar hér í skólanum. Á framhaldsskólaárum kynnumst við oft á tíðum okkar bestu vinum sem við eigum ævilangt, þótt leiðir skilji á vissan hátt nú við brautskráningu. Viðhaldið vináttunni til hvors annars.
�?g minni ykkur á að þið eruð ekki laus við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum þó að þið séuð að útskrifast héðan í dag. �?ið eruð alla ævi nemendur skólans og skólinn er stoltur af ykkur eins og þið eruð stolt af ykkar skóla. Nú er það ykkar að nota hvert tækifæri til að tala vel um skólann.

Nýjustu fréttir

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.