Ánægður með samskiptin við Eyjamenn sem hafa tekið okkur vel - myndir
Rétt fyrir jól hélt Hampiðjan fund á verkstæði sínu í Vestmannaeyjum um veiðar og veiðarfæri á nýju verkstæði sínu. �?angað mættu skipstjórnarmenn og forráðmenn sjávarútvegsfyrirtækja í Eyjum og kynntu sér þessa stórglæsilegu aðstöðu sem Hampiðjan býður upp á og helstu nýjungar í veiðarfærum og þróunarvinnu fyrirtækisins.
Jón Oddur Davíðsson, markaðs- og sölustjóri Hampiðjunnar á Íslandi rakti sögu félagsins sem stofnað var í miðri kreppu árið 1934. Fyrst eingöngu til að framleiða garn úr hampi, manillu og sísal til netahnýtingar. Lengst af var Hampiðjan til húsa í Stakkholtinu í Reykjavík og út um allan bæ voru konur og karlar að hnýta netastykki fyrir hana. Síðan hefur félagið eflst og dafnað og útrás hófst upp úr 1995.
Einar Skaftason, veiðarfærahönnuður sagði frá tankferð Hampiðjunnar til Danmerkur 2016 og þróun trolla sem fyrirtækið framleiðir, eins Seastar, breiðtrollum og flottrollum.
Kristinn Gestsson, sölumaður veiðarfæra lýsti kostum nýrra Thyborøn botn�?? og flottrollshlera. Guðmundur Gunnarsson sagði frá T90 trollpokunum og DynIce tógunum.
Rekstur Hampiðjunnar er núna umfangsmikill á heimsvísu og spannar allt frá Dutch Harbor á vestasta odda Alaska til bæjarins Nelson á suðureyju Nýja Sjálands. Í Vestmannaeyjum eru þrír starfsmenn. Forstjóri Hampiðjunnar, sem er alfarið í eigu Íslendinga, er Hjörtur Erlendsson. Auk starfseminnar á Íslandi er Hampiðjan með starfsemi í Færeyjum, Noregi, Danmörku, Grænlandi, Írlandi og Litháen, þar sem öll framleiðsla á tógum og netum er. Líka í fjarlægum löndum eins og Rússlandi, Ástralíu og Nýja Sjálandi, Nýfundnalandi, Seattle í Bandaríkjunum og litla starfsstöð á austurströndinni nálægt Boston.
Á Íslandi eru starfsstöðvar í Reykjavík, Vestmannaeyjum og svo á Hampiðjan meirihluta í Fjarðaneti sem starfar á Norðfirði, Akureyri og Ísafirði.
�??Í allt eru þetta 35 starfsstöðvar í tólf löndum. Starfsmenn eru í allt rúmlega 900 og þar af 70 á Íslandi.�?? sagði Hjörtur forstjóri í samtali við Eyjafréttir eftir fundinn. �??Félagið hafði vaxið hér innanlands en það var árið 1995 sem við fórum að horfa út fyrir landssteinana. Við byrjuðum í Nýja Sjálandi og Namibíu og stóra stökkið tókum við árið 2016 með kaupum á netagerðarfyrirtækinu Voninni í Færeyjum. Með því tvöfölduðum við veltu Hampiðjusamstæðunnar. Við gerum upp í evrum og var veltan 2016 rúmlega 117 milljónir evra eða 14,5 milljarðar á gengi dagsins í dag.�?? sagði Hjörtur.
�??�?g er mjög ánægður með samskiptin við Eyjamenn enda hefur okkur verið tekið afskaplega vel og allt gert til að greiða götu okkar. Við viljum að Eyjamönnum gangi allt í haginn í leik og starfi og viljum bjóða uppá góða og vandaða þjónustu fyrir útgerðarfyrirtækin sem starfa í Eyjum enda eru Eyjarnar ein stærsta fiskveiðihöfnin á Íslandi.�??
Hér bjóðum við upp á fyrsta flokks aðstöðu
�??�?g get fullyrt að hér bjóðum við upp á fyrsta flokks aðstöðu sem skilar sér í bættri vinnuaðstöðu og betri þjónustu við viðskiptavini,�?? sagði Eiríkur Sigurgeirsson, Eyjamaður sem lengi hefur þjónað Hampiðjunni. �??Lengd hússins var nær þrefölduð úr 21 metra í 60 metra sem gerir alla vinnu bæði auðveldari og léttari. Við erum með tvær brautir, nótabraut með fimm kraftblökkum auk hjálparspila. Við enda brautarinnar er gryfja fyrir næturnar þannig að þær taki ekki eins mikið pláss í húsinu. Verði ekki eins og mikið fjall á gólfinu.
Flottrollsbrautin er með flottrollstromlur á báðum endum og í loftinu eru svo blakkir til að greiða trollin í sundur og færa þau til eftir þörfum. �?g held því fram að hér séum við með frábæra aðstöðu sem skilar sér í færri unnum tímum við hvert verk. Starfsmannaaðstaðan stenst líka allar kröfur sem gerðar eru í dag,�?? sagði Eiríkur að endingu.
Á fundinum var boðið upp á fyrsta flokks veitingar sem Sigurður Gíslason, stórkokkur á GOTTsá um.

Nýjustu fréttir

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.