�?ttar Steingrímsson er matgæðingur vikunnar: Einfaldur beikon- fiskréttur sem er snilld eftir allt jólasukkið!
�?g vill þakka Bergi Páli fyrir áskorunina.
Beikon fiskréttur
�?� 700-800 g þorskur
�?� 300-400 g sætar kartöflur
�?� 100 g beikon
�?� Hálfur Auður, hvítmygluostur
Við byrjum á því að steikja beikonið á pönnu þar til mikið af fitunni hefur bráðnað en beikonið er ekki orðið fullstökkt (engar áhyggjur, það gerist síðar), á meðan það er að gerast er sæta kartaflan skorin í teninga.
�?egar beikonið er tilbúið er það tekið af pönnunni og kartöfluteningarnir settir á hana í staðinn. Kartöflurnar eru svo steiktar í 2-3 mínútur upp úr beikonfitunni sem sat eftir á pönnunni og kryddaðar með pipar og rósmaríni. �?etta er gert til að ná beikonbragðinu í kartöflurnar áður en ég set þær inn í ofninn.
Kartöflurnar fara í ofnfast fat og inn í ofn á 180° í 20 mínútur.
Á meðan kartöflurnar bakast er fiskinum velt upp úr smá ólífuolíu og kryddaður með pipar og örlitlu salti. �?að þarf ekki mikið því beikonið er nokkuð salt.
Hvítmygluosturinn er tekinn úr kæli og u.þ.b. hálfur osturinn er skorinn niður í sneiðar sem eru um hálfur cm að þykkt.
�?að er best að borða hvítmygluosta við stofuhita, silkimjúka og bragðmikla, en það er mun auðveldara að skera þá niður beint úr ísskápnum, þá eru þeir talsvert stífari.
�?egar kartöflurnar hafa bakast í 20 mínútur eru þær teknar út og fiskurinn lagður ofan á þær. Yfir fiskinn fer svo beikonið og sneiðar af hvítmygluosti.
Fatið fer aftur inn í ofn í 10 mínútur á 180°, fiskurinn bakast, beikonið verður stökkt og osturinn bráðnar, gerist ekki betra.
�??Ef þið viljið gera þetta glæst er hægt að saxa smá af ferskum kryddjurtum yfir, til dæmis salvíu, rétturinn steinliggur svona!�??
�?g skora á mömmu mína, Jóhönnu Magnúsdóttur. Er það ekki alltaf, allt best hjá mömmu?

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.