Gallup - 92% eru ánægðir með Grunnskóla Vestmannaeyja og 88% með leikskóla.
Í gær var haldinn fundur í fræðsluráði Vestmannaeyjabæjar en það ráð fer meðal annars með málefni allra skóla, daggæslu og fleirra. Til umfjöllunar var niðurstaða þjónustukönnunar Gallup sem gerð er árlega til að kanna ánægju með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð þar á, ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum. Sú könnun sem nú var til umfjöllunar fór fram frá 3. nóvember til 17. desember. Allir þættir sem undir ráðið falla eru yfir landsmeðaltali og ánægja eykst á milli ára.
92% þeirra sem taka afstöðu eru ánægðir með þjónustu Grunnskóla Vestmannaeyja og 88% með leikskóla.
92% þeirra sem afstöðu tóku voru ánægðir með Grunnskóla Vestmannaeyja
Grunnskóli Vestmannaeyja er í senn einn stærsti vinnustaður Eyjanna með um 520 nemendur og 133 starfsmenn og einn mikilvægasti þjónustuþáttur Vestmannaeyjabæjar.
�?egar spurt var hversu ánægðir íbúar voru með þjónustu grunnskóla sveitarfélagsins kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu (88%) voru 91% ánægð en einungis 9% óánægð og eykst ánægjan mikið á milli ára og er yfir landsmeðaltali.
88% þeirra sem afstöðu tóku sögðust ánægðir með þjónustu leikskóla.
�?egar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu leikskóla sveitarfélagsins kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu (87%) sögðust 88% ánægð og 12% óánægð og eykst ánægjan nokkuð á milli ára og er yfir landsmeðaltali.
Mikil ánægja með þjónustu við barnafjölskyldur í Vestmannaeyjum
�?á vekur það sérstaka ánægju að þegar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu (85%) sögðust 83% ánægð en 17% óánægð og eykst ánægjan milli ára og er yfir landsmeðaltali.
Elliði Vigisson greindi frá niðurstöðuum á heimasíðu sinni og sagði hann ástæðu til að fagna þessum niðurstöðum, �??og þá ekki síst í ljósi þess að starfsmenn eru hér að uppskera árangur erfiðs síns enda mikil áhersla verið lögð á að efla og styrkja fræðslukerfið og þjónustu við börn almennt á seinustu árum. Eftir sem áður, vitum við öll að enn er hægt að gera gott betra. Í því samhengi má til að mynda benda á að þegar hefur til að mynda verið samþykkt að byggja nýja deild við leikskólann Kirkjugerði auk þess sem byggja á nýjan samkomusal við skólann, stækka starfmannaaðstöðu, bæta eldhúsaðstöðu og ýmislegt fl. Allir þessir liðir munu vafalaust bæta þjónustu þeirrar góðu stofnunar til muna. �?á hefur einnig verið samþykkt að byggja við Barnaskólann, stórbæta skólalóðir bæði Hamars- og Barnaskóla og ýmislegt fleira.�??
Gjaldskrár leikskóla hafa lækkað um 20% og framlög með dagvistun í heimahúsum um 50%
Á sama hátt er stöðugt unnið að því að lækka álögur á þjónustunotendur og vísast hvað það varðar til að mynda til nýlegrar lækkunar á leikskólagjöldum um 20% auk þess sem að upphæð niðurgreiðslu vegna dagvistunar í heimahúsum var aukin um 50% frá og með 1. Janúar sl. Áfram þarf að halda hvað það varðar.

Nýjustu fréttir

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.