Stórkostlegur þrettándi
�?rettándagleði ÍBV tókst heldur betur vel í gær þegar bæj­ar­bú­ar fjöl­menntu í göngu með Grýlu, Leppalúða, tröllum og jóla­svein­un­um þrettán. Gangan hófst eftir glæsilega flugeldasýningu og var gengið upp Ill­uga­göt­una og þaðan inn á Mal­ar­völl. Á Mal­ar­vell­in­um var kveikt í brennu og um völlin fóru álfar, púk­ar og tröll. Jólasveinarnir og foreldrar þeirra, Grýla og Leppalúði gengu einnig um og heilsuðu uppá börnin við misjafna hrifningu.
Dag­skrá­in endaði með flug­elda­sýn­ingu og í lokin var kveikt á blys­um. Blysin voru varla búin þegar tók að snjóa hressilega, það má segja að kvöldið hafi heppnaðist vel í alla staði.
Ljósmyndari Eyjafrétta �?skar Pétur Friðriksson tók myndirnar og munu fleirri myndir ásamt umfjöllun um alla þrettándahelgina birtast í næsta tölublaði Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.