Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tillögu Stefáns �?skars Jónassonar, bæjarfulltrúa E-listans, að fara þess á leit við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að byggður verði þyrlupallur á láglendi Heimaeyjar.
Tilgangur þyrlupalls væri að auka öryggi vegna sjúkraflugs frá Eyjum þegar hvorki sjúkraflugvélar né þyrlur geta lent vegna veðurs flugvellinum. Í greinargerð sem fylgdi tillögunni segir að þyrla sé mikilvægt öryggistæki ef flugvöllurinn lokast, Herjólfur sé ekki í siglingum og Landeyjahöfn lokuð.