Fyrr í dag kom bæjarráð saman og fjallaði meðal annars um þann hluta árlegarar þjónustukönnunar Gallup sem snýr að ráðinu. Könnun þessi er gerð til að kanna ánægju með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð þar á ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum og fór hún fram frá 3. nóvember til 17. desember. Elliði Vignisson bæjarstjóri birti niðurstöðurnar á
heimasíðu sinni.
91% íbúa ánægð með Vestmannaeyjar sem stað til að búa á.
�?egar spurt var hversu ánægðir íbúar voru með Vestmannaeyjar sem stað til að búa á kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu (90%) voru 91% ánægð en einungis 9% óánægð.
Samgöngumál og heilbrigðismál draga úr ánægju með þjónustustigið almennt
�?egar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu sveitarfélagsins á heildina litið kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu (78%) sögðust 83% vera ánægð og 17% óánægð.
�?egar nánar var spurt út í hvað helst þyrfti að bæta svöruðu 40% samgöngumál og 21% heilbrigðismál og/eða heilsugæslu jafnvel þó að þekkt sé að þeir þjónustuþættir eséu á ábyrgð ríkisins en sveitarfélagsins.
83% sögðust ánægð með hvernig sveitarfélagið sinnir menningamálum
Aðspurð um hversu ánægt fólk væri með hvernig sveitarfélagið sinnir menningarmálum svaraði 83% af þeim sem afstöðu tóku (77%) að það væri ánægt.