Mikil óánægja með sorphirðu
Í vikunni fjallaði Framkvæmda- og hafnaráð um þann hluta árlegarar þjónustukönnunar Gallup sem snýr að ráðinu. Könnun þessi er gerð til að kanna ánægju með þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð þar á ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum og fór hún fram frá 3. nóvember til 17. desember.
Eingöngu var spurt út í einn lið er snýr að þjónustu ráðsins og sneri hann að sorphirðu. �?egar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu í tengslum við sorphirðu í sveitarfélaginu kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu (84%) voru eingöngu 55% ánægð en 45% óánægð. Meðaleinkunn sveitarfélaga á þessari spurningu á skalanum 1 til 5 var 3,6 en einkunn Vestmannaeyjabæjar einungis 3 og því langt undir meðaltali.
�?essi niðurstaða er í samræmi við það sem ráðið hefur áður rætt og full ástæða til að taka hana alvarlega. �?ví fól ráðið framkvæmdastjóra þegar að boða forsvarsmenn Kubbs sem annast sorphirðu og �??meðhöndlun til fundar við ráðið svo fljótt sem verða má.
Eins og þekkt er var sorpbrennslu bæjarins lokað árið 2011 að kröfu Umhverfisstofnunar. Síðan þá hefur bæjarfélagið glímt við mikinn vanda innan málaflokksins og orðið að flytja stóran hluta þess til förgunar um langan veg. Á árinu 2018 er áætlað að tekin verði stór skref í átt að varanlegri lausnum og er þar sérstaklega horft til þess að taka upp brennslu á ný í fullkomnum ofni.

Nýjustu fréttir

Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Skemmtilegast að sauma í skólanum
Gaman að vera byrjaður í skólanum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.