Lumar fyrirtækið þitt á verkefnum fyrir Heimaey hæfingarstöð?
Lísa Njálsdóttir yfirmaður málaflokks fatlaðs fólks og forstöðumaður Heimaeyjar kynnti starfsemi Heimaeyjar – vinnu- og hæfingarstöðvar fyrir fjölskyldu- og tómstundaráð í síðustu viku.
Í Heimaey fer fram dagþjónusta, hæfing, iðja, starfsþjálfun og vernduð vinna samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks og eftir reglugerð um atvinnumál fatlaðs fólks. Í Heimaey starfa 28 einstaklingar í misstórum starfshlutföllum. 8 leiðbeinendur, 9 í verndaðri vinnu, 8 í hæfingu og 3 í lengdri viðveru.
Heimaey veitir dagþjónustu fyrir fólk sem vegna fötlunar þarf sérhæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu, létta vinnu, þjálfun, umönnun og afþreyingu. �?jónustunotendur vinna bæði verkefni frá utanaðkomandi aðilum ásamt því að þróa eigin framleiðslu. Í hæfingunni eru nokkur verkefni sem skapa tekjur. Einnig er framleitt handverk sem selt eru á árlegum jólamarkaði. Lögð er áheyrsla á heilbrigði, hreyfingu, tómstundir og afþreyingu auk ýmissa starfa sem tengjast heimilishaldi og daglegum störfum.
Heimaey er mótttökuaðili á einnota umbúðum fyrir hönd Endurvinnslunnar. Einnig eru framleidd hágæða kerti á landsvísu í vinnusalnum. Starfsmenn í vinnusal þar sem m.a. kertagerðin er og í Endurvinnslunni eru skilgreindir sem starfsmenn í verndaðri vinnu. Heimaey er aðili að Hlutverki sem eru hagsmunasamtök um vinnu og verkþjálfun á Íslandi.
Ánægjulegt er að sjá hversu vel hefur tekist til með þær breytingar sem gerðar voru á húsnæðinu og þjónustu í málaflokknum.
Lísa sagði á fundinum að rétt væri að benda á að sífellt er þörf á nýjum heppilegum verkefnum fyrir starfsmenn í verndaðri vinnu og eru fyriræki og félagasamtök hvött til að nýta sér þjónustu sem þar er bent á.

Nýjustu fréttir

Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.