Matgæðingur vikunnar: Bresk fiskibaka að hætti Gordon Ramsey
Vegna óviðráðanlegra orsaka gat næsti matgæðingur Eyjafrétta ekki skilað inn uppskrift að þessu sinni og frestast því um viku.
Við leituðum því á náðir alnetsins og enduðum hjá Svövu sem heldur úti síðunni www.ljufmeti.com.
Bresk fiskibaka
�?� 1 laukur, afhýddur og skorinn
í fjórðunga
�?� 3-4 negulnaglar
�?� 1 lárviðarlauf
�?� 250 ml. rjómi
�?� 250 ml. mjólk
�?� 400 gr. þétt, hvít fiskflök
(ég notaði þorsk)
�?� 400 gr. reykt ýsa
�?� 30 gr. smjör
�?� 2 blaðlaukar, þvegnir og skornir
í þunnar sneiðar
�?� 30 gr. hveiti
�?� maldonsalt og svartur pipar
�?� lófafylli af saxaðri steinselju
�?� 300 gr. hrár skelflettar rækjur.
�?ekja
�?� 750 gr. afhýddar kartöflur
�?� 75 gr. smjör í bitum
�?� 50 ml. heit mjólk
�?� 2 eggjarauður
�?� 75-100 gr. rifinn cheddar ostur.
Stingið negulnöglum í laukinn og setjið í pott ásamt rjóma, mjólk og lárviðarlaufi. Látið suðuna koma upp og bætið þá hvíta fiskinum og reyktu ýsunni í pottinn. Sjóðið í 3-4 mínútur, fiskurinn þarf ekki að vera soðinn í gegn. Hellið úr pottinum í sigti og geymið vökvann.
Bræðið smjör í potti og steikið blaðlaukinn þar til hann mýkist, um 4-6 mínútur. Bætið hveitinu saman við og hrærið í 2 mínútur. Hellið vökvanum af fiskinum rólega út í og hrærið vel á milli. Látið sjóða við vægan hita í 10-15 mínútur og hrærið öðru hverju í pottinum. Kryddið með salti og pipar og bætið steinselju saman við.
Skerið afhýddar kartöflur í bita og setjið í pott með saltvatni. Sjóðið þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar í gegn. Hellið vatninu frá og stappið kartöflurnar. Hrærið smjöri og mjólk vel saman við og látið stöppuna kólna aðeins. Hrærið eggjarauðum saman við og kryddið með salti og pipar.
Hitið ofninn í 180°. Skerið fiskinn niður í munnbitastærð og blandið bitunum, ásamt rækjunum, saman við blaðlaukssósuna. Setjið fiskinn og sósuna í eldfast mót og breiðið kartöflustöppunni yfir. Gerið rákir með gaffli yfir kartöflumúsina og stráið rifnum cheddar osti yfir. Bakið í 25-30 mínútur eða þar til sósan í bökunni bullsýður og osturinn er kominn með fallegan lit.
Nánar um uppskriftina og fleiri uppskrifir má finna á síðunni
www.ljufmeti.com

Nýjustu fréttir

Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.