Í síðustu viku var borin út símaskrá í öll hús í bænum. Ánægjan var mis mikil hjá fólki í ljósi þess að talsvert var af vitleysum í henni. Á forsíðunni var merki ÍBV sem leiddi til þess misskilnings að fólk hélt að skráin væri gefin út af félaginu.
Í kjölfar þess kom þessi tilkynning frá ÍBV:
�??Vegna misskilnings sem er í gangi vil ég fyrir hönd ÍBV íþróttafélags koma eftirfarandi á framfæri:
Símaskráin sem borin var í hús í vikunni er ekki gefin út af félaginu og tengist félagið útgáfu þess ekki á nokkurn hátt.�??
Eyverjar gáfu símaskrána út
Símaskráin var gefin út af Eyverjum. Nökkvi Dan Elliðason hafði þetta að segja fyrir hönd Eyverja í samtali við Eyjafréttir í dag.
�??Við í Eyverjum sátum samtals 10 klukkutíma í yfirferð á gagnaskránni sem við áttum. Vissulega eru einhverjir fallnir frá og einhverjir með vitlaus símanúmer en nokkuð öruggt er að þeir sem eru í símaskránni 2018 eru einnig í gagnaskránni hjá ja.is af því við hreinsuðum út alla sem voru ekki þar.
En við áttum alveg eins von á að fólk myndi blása upp að þetta væri allt vitlaust og ömurlegt og því settum við í lok bæði nafna- og fyrirtækja símaskránna emailið þar sem benda má á villur o.þ.h. Verst finnst mér þó ef fólk ætlar að hella sér yfir alla þá vinnu sem var lagt í þetta, þar sem það eru áralangar hefðir fyrir þessu riti og nú með skemmtilegu ívafi um �??þjóðarstolt�?� okkar Eyjamanna; ÍBV. Unglingahreyfing á aldrinum 15-21 árs sem öll hafa æft og spilað fyrir ÍBV að leggja mikinn metnað í að rífa upp áralanga hefð frá dauða, er það ekki eitthvað sem við eigum að fagna frekar en að dreifa skít yfir?
Vissulega er letrið smærra en við ætluðum okkur en það var vegna samskiptaörðuleika við prentsmiðjuna sem prentaði símaskránna. Takk fyrir mig og megi emailið: nokkvi16@ru.is fyllast af villuábendinum næstu mánuðina svo við getum gert símaskránna 2019 ennþá betra og skemmtilegra.�??