Bændum var boðið í kaffi á leikskólum bæjarins - myndir
Líkt og fyrri ár fengu karlkyns fjölskyldumeðlimir barna á leikskólunum Sóla og Kirkjugerði boð um að kíkja í kaffi á bóndadeginum sem var sl. föstudag. Með kaffinu fengu gestirnir að gæða sér á dýrindis bakkelsi og eiga gæðastund með börnunum sem höfðu að sjálfsögðu mikið gaman af uppátækinu.