�??Við byrjuðum loðnuveiðar uppúr áramótunum og höfum veitt rúmlega 10.000 tonn á uppsjávarskipunum,�?? sagði Eyþór Harðason hjá Ísfélaginu í samtali við Eyjafréttir. Hann sagði að þetta hafi farið að mestu leyti í bræðslu á �?órshöfn, en hluti einnig í frystingu.
�??Framhaldið í loðnuveiðunum er óljóst, og lifum við í voninni að Hafrannsóknarskipin mæli gott magn af loðnu, svo vertíðin verði góð. Ef ekki þá þurfum við að hægja á okkur fljótlega með þær veiðar,�?? sagði Eyþór.
Eyþór sagði að á meðan hafi bolfiskskipin Suðurey og Dala Rafn séð vinnslunni hér í Eyjum fyrir hráefni.