Blóðsykursmæling í dag milli 14 og 16 í boði Lions
Sá sjúkdómur sem er í hvað mestri sókn á Vesturlöndum þessi árin er áunnin sykursýki af gerð tvö. Aukin þyngd manna og auknar kyrrsetur bjóða heim þessum vágesti. Talið era ð hundruð manna á Íslandi gangi með sykursýki án þess að vita það. �?essi sjúkdómur leggur fólk að velli hljóðlega og er án einkenna lengi framan af en getur valdið blindu og eyðilagt blóðrásina í fótum ef hann greinist ekki fljótt. Greiningin er einföld og smá blóðdropi getur bent til að ástæða sé til að leita læknis.
Lionsklúbburinn í Vestmannaeyjum vill leggja sitt lóð á vogaskálarnar til að hemja þennan vágest og bíður því Eyjamönnum fría blóðsykursmælingu í dag milli kl. 14 og 16 í Apótekaranum í Baldurshaga. Hvetjum sem flesta til að mæta til mælinga, það er engu að tapa en allt að vinna.

Nýjustu fréttir

Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.