Vestmannaeyjabær og Hugarfrelsi í samstarf
Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs var tekið fyrir erindi frá fyrirtækinu Hugarfrelsi ehf. Fyrirtækið óskar eftir að gerast samstarfsaðili við Vestmannaeyjabæ vegna endurgreiðslu frístundastyrks til forráðamanna barna sem hyggjast sækja námskeið hjá þeim í Vestmannaeyjum.
Reglur Vestmannaeyjabæjar setja skilyrði um að félög, fyrirtæki og stofnanir sem vilja gera slíkan samstarfssamning skuli hafa aðsetur í Vestmannaeyjum. Fjölskyldu- og tómstundaráð hefur heimild til að veita undanþágu frá þessum reglum og gerir það í þessu tilfelli.
Hugarfrelsi ehf. býður upp á umrædd námskeið víða um land og hafa sveitarfélög almennt veitt undanþágu fyrir slíkum samstarfssamningi. Hugarfrelsi ehf. stundar rekstur undir eigin kt. og fellur starfsemi þeirra undir markmið laga, reglugerða og stefnu Vestmannaeyjabæjar. Námskeiðin hafa m.a. það markmið að draga úr kvíða hjá börnum og ala á jákvæðri hugsun.
Foreldrar eru hvattir til að efla börn sín til virkni í íþrótta- og tómstundastarfi og nýta sér frístundastyrkinn á einn eða annan hátt, segir tillkynningu frá fjölskyldu- og tómstundaráði.
Katrín Harðardóttir mun kenna námskeiðin frá Hugarfrelsi í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.