Dagur kvenfélagskonunnar
Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar ár hvert. Kvenfélagasamband Íslands var stofnað á þessum degi árið 1930. Árið 2010 var þessi dagur formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í 140 ár. Enda löngu tímabært að kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu.
Dagurinn hefur fest sig í sessi undanfarin ár og ætla kvenfélagskonurnar í Líkn að gera sér glaðan dag og verður vöfflukaffi í Líknarhúsinu opið öllum. �?að var því við hæfi að heyra í nokkrum kvenfélagskonum í tilefni þessa, en þær eru allar sammála um að það sé algjör mýta að þær séu alltaf bakandi. �?etta er fyrst og fremst skemmtilegt og gefandi.
Blaðamaður mælti sér fyrst mót við formann Líknar Eddu �?lafsdóttur ásamt Ágústu Huldu Árnadóttur og Gíslínu Dögg Bjarkadóttur. Tilefnið var eins og áður segir dagur kvenfélagskonunnar og sagði Edda að í ár yrði þetta í þriðja skipti sem þær væru með opið hús og konur væru velkomnar að kíkja í heimsókn í dag, fimmtudag milli 16:30 og 17:30. �??Konur geta komið með börnin sín eða hvern sem þær vilja og kynnt sér starfsemina eða bara komið í spjall og vöfflur,�?? sagði Edda.
Hægt er að nálgast viðtalið í heild sinni i nýjasta tölublaði Eyjafrétta og á vefútgáfu blaðsins.

Nýjustu fréttir

Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Vestmannaeyjabær: Ráðið í stöðu deildarstjóra launadeildar
Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.