Nýja ferjan mun sigla 85% af tímanum í Landeyjahöfn
Í síðustu viku voru í heimsókn Sigurður Áss Grétarsson framkvæmdastjóri siglingasviðs Vegagerðarinnar og Jóhannes Jóhannesson skipaverkfræðingur, verkefnisstjóri með smíði ferjunnar. �?eir funduðu með sjómannafélögunum og bæjarstjórn og var tilgangur ferðarinnar að kynna nýja skipið og hvernig er áætlað að halda dýpinu í Landeyjahöfn fyrir það. Með þeim var svo Andrés S. Sigurðsson sem situr í nefnd um hönnun og smíði á ferjunni og Elliði Vignisson bæjarstjóri.
Sigurður Áss sagði að þeir hefðu annarsvegar verið að kynna skipið, stöðu þess, hvernig það lítur út og hvaða eiginleika það hefur. �??Svo kynntum við hvernig við ætlum að reyna að tryggja nægjanlegt dýpi fyrir nýju ferjuna og hvaða annmarkar eru á því og hvað það er sem hægt er að gera til þess að bæta úr því. Aðal vandamálið fyrir væntanlega ferju er dýpið í hafnarmynninu, en vandamálið er auðvitað stærra fyrir Herjólf sem nú siglir á milli,�?? sagði Sigurður. �??Stefnt er að því að skapa aðstöðu á garðsendunum fyrir krana og vera þar með dælu sem dælir sandi uppúr botninum í hafnarmynninu og tryggir þar með nægjanlegt dýpi fyrir nýju ferjuna. Frá dælunni liggur svo lögn upp á land þar sem losnað er við sandinn……
Hægt er að nálgast viðtalið í heild sinni i nýjasta tölublaði Eyjafrétta og á vefútgáfu blaðsins.

Nýjustu fréttir

Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.