Hefnd Helgafells afhent
Fjölmenni var í Einarsstofu laugardaginn 27. janúar á dagskrá sem boðið var upp á í tilefni af gjöf eins frægasta málverks Guðna Hermansen, Hefnd Helgafells. Gefandinn er Jóhanna Hermannsdóttir, Vestmannaeyingur sem hefur lengi verið búsett í Bandaríkjunum. Jóhanna keypti málverkið í heimsókn sinni til Eyja sumarið 1972 og hefur verkið prýtt heimili hennar ytra frá þeim tíma. Gísli Pálsson prófessor og Eyjamaður hafði samband við Jóhönnu fyrir rösku ári síðan og í spjalli þeirra kom fram að vilji hennar væri að málverkið kæmist heim. Í framhaldinu fékk Kári Eyjamanninn Stefán Hauk Jóhannesson ráðuneytisstjóra og síðar sendiherra til að taka að sér að sjá um flutning verksins til Eyja. Á ráðstefnunni fluttu Helgi Bernódusson erindi um málverkið, Guðna og Jóhönnu og Hermann Pálsson minntist vinar síns Guðna en þeir voru miklir samherjar alla tíð. Helgi Hannesson, sonur Jóhönnu, afhjúpaði verkið og las upp gjafabréf móður sinnar, en Hildur Sólveig Sigurðardóttir forseti bæjarstjórnar veitti verkinu viðtöku í forföllum Elliða Vignissonar bæjarstjóra. �?á sýndi Gísli Pálsson prófessor 18 ljósmynda syrpu sem hann tók saman sem hann kallaði ævisögu málverks ásamt broti úr viðtali við Jóhönnu þar sem hún ræddi um grát málverksins. Dagskránni lauk með því að fundarstjóri, Kári Bjarnason kynnti skemmtilega sýningu sem hann, Hermann Einarsson og Listvinir Safnahúss tóku saman þar sem þau fengu lánuð málverk hjá bæjarbúum af Helgafelli eftir Guðna Hermansen. Stendur sýningin í Einarsstofu til sunnudagsins 4. febrúar og er opin virka daga 10-18 og laugardag og sunnudag 13-16.�?trúlega fjölbreytt sýning þó viðfangsefnið sé hið sama. Skemmtileg dagskrá og góður rammi utan um veglega gjöf, málverkið Hefnd Helgafells sem á auðvitað hvergi annars staðar heima en í Eyjum.

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.