Sá sjúkdómur sem er í hvað mestri sókn á Vesturlöndum þessi árin er áunnin sykursýki af gerð tvö. Aukin þyngd og auknar kyrrsetur bjóða heim þessum vágesti. Talið er að hundruð manna á Íslandi gangi með sykursýki án þess að vita það. Lionsklúbburinn í Vestmannaeyjum lagði sitt lóð á vogaskálar og bauð Eyjamönnum fría blóðsykursmælingu sl. fimmtudag. Ingimar Heiðar Georgsson hefur verið meðlimur í Lionsklúbbi Vestmannaeyja í mörg ár og er hann Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Ingimar Heiðar Georgsson.
Fæðingardagur: 12. maí 1960.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Hún er Stór! Eiginkona, sjö börn, fimm tengdabörn, sjö barnabörn, tveir hundar og einn köttur.
Uppáhaldsvefsíða: Mbl.is.
Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Eric Clapton, Santan og Rolling Stones.
Aðaláhugamál: Lífið.
Uppáhalds app: Flash Score.
Mottó í lífinu: Halda áfram.
Android eða Apple: Android.
Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Jón Sigurðsson.
Hvaða bók lastu síðast: Dagbók Vöruvals.
Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Uppáhalds íþróttafélögin eru þrjú í þessari röð. Lunch United, ÍBV og Leeds United.
Stundar þú einhverja hreyfingu: Daglegur göngutúr með hundana kl. sex á morgnana og fótbolti 2x í viku með Lunch United VM.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Fréttir.
Af hverju varð þetta málefni fyrir valinu: Lions hugar að nærsamfélaginu okkar, því viljum við bjóða upp á blóðsykursmælingu, ásamt öðrum samfélagsverkefnum.
Var mikil aðsókn í mælinguna: Aðsókn var góð, 80-100 manns mættu.
Teljið þið svona mælingar geti bjargað mannslífum: Já, að sjálfsögðu bjarga svona mælingar mannslífum. Við hjá Lionsklúbbi Vestmannaeyja höfum staðið fyrir svona mælingum sl. 10-12 ár og á þeim árum hafa margir verið sendir áfram til frekari skoðunar hjá heilbrigðisstofnuninni.