Heilsuefling á vegum sjúkraþjálfara
Hvað er sjúkraþjálfun?
Starfsemi sjúkraþjálfara er fjölbreytt en sjúkraþjálfarar veita þjónustu sem miðar að því að bæta, viðhalda og endurhæfa hreyfigetu og virkni fólks. Sjúkraþjálfarar stuðla að auknum lífsgæðum með því að huga að líkamlegri, huglægri, tilfinningalegri og félagslegri vellíðan. �?eir starfa innan heilbrigðisgeirans við heilsueflingu, forvarnir, meðferð, þjálfun, hæfingu og endurhæfingu. �?ekking sjúkraþjálfara á mannslíkamanum og hreyfifærni hans er lykilatriði til greiningar og ákvörðunar varðandi meðferð og þjálfun skjólstæðinga.
Fjölbreytt þjónusta sjúkraþjálfara
Í Vestmannaeyjum veita sjúkraþjálfarar fjölbreytta þjónustu m.a. í formi þjálfunar á borð við vatnsleikfimi sem er miðað að einstaklingum með stoðkerfisvanda, gigtarleikfimi og lungna- og hjartaleikfimi. Við heilsugæsluna starfar sjúkraþjálfari sem hreyfistjóri en læknir getur ávísað hreyfiseðli til sjúklinga sinna sem eru að kljást við sjúkdóma þar sem vísindalega hefur verið sannað að hreyfing hefur jákvæð áhrif, á borð við háþrýsting, þunglyndi, efnaskiptasjúkdóma, sykursýki ofl. �?eir einstaklingar fá þá tíma hjá hreyfistjóra sem aðstoðar sjúklinginn við að gera hreyfinguna hluta að lífstíl sínum. Sjúkraþjálfarar flytja gjarnan fræðslufyrirlestra á borð við vinnuvistfræðiráðgjöf til vinnustaða, fræðslu um líkamsvitund og líkamsbeitingu, fræðslu um forvarnir íþróttameiðsla ofl.
Forvarnir stoðkerfisverkja mikilvægar
Verkir eru ekki eðlilegt ástand og getur fræðsla og meðferð sjúkraþjálfara auðveldað einstaklingum að koma í veg fyrir verkjaástand eða halda verkjum niðri og lágmarka áhrif þeirra á lífsgæði og athafnagetu. �?að er í raun ótrúlegt að hugsa til þess að inni á hverju einasta heimili erum við með hin ýmsu útskiptanlegu raftæki sem fylgja gjarnan þykkir bæklingar með notkunarleiðbeiningum, hvernig við getum lengt líftíma tækjanna með réttri notkun og ef eitthvað bilar hvað við eigum til bragðs að taka. En með einu stærsta verkfræðiundri heimsins, mannslíkamanum, fylgja því miður engar notkunarleiðbeiningar. Líkaminn þarf að endast okkur ævina á enda og til að tryggja hámarksnýtingu hans og lágmarka slit á beinum og liðum þarf að fara vel með hann. �?ar skiptir þekking á réttri líkamsstöðu, líkamsvitund og góðri líkamsbeitingu miklu máli. Stoðkerfisverkir, m.a. vegna bakvandamála og slitgigtar, eru einnig stór þáttur veikindafjarvista starfsfólks og sjúkrakostnaðar en með öflugum forvörnum er hægt að lágmarka þann kostnað og þá skerðingu lífsgæða sem stoðkerfisverkir hafa í för með sér.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Sjúkraþjálfari og vinnuvistfræðiráðgjafi
Grein birtist í heilsublaði Eyjafrétta sem hægt er að lesa hérna.

Nýjustu fréttir

Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.